Nemendur á Varmalandi hafa staðið sig frábærlega í lestrarátaki undanfarna daga og í dag var komið að verðlaunum fyrir dugnaðinn. Í samráði við nemendur var ákveðið að halda bangsadag þar sem hver og einn mætti með sinn uppáhalds bangsa í skólann.
Dagurinn hófst á því að nemendur unnu skapandi verkefni tengd bangsanu sínum og kynntu þau svo fyrir bekkjarfélögum sínum. Þar flæddu sögur, lýsingar og persónuleg tengsl við bangsa sem skapaði notalega og fjölbreytta stemningu.
Að loknum kynningum var haldið í sund þar sem sannkallað sundlaugarpartý tók við. Þar léku nemendur sér saman, hlógu og nutu dagsins í botn. Allir skemmtu sér konunglega og létu vel af deginum.
Við óskum öllum nemendum til hamingju með frábæran árangur í lestri og vonum að bangsadagurinn verði dýrmæt minning í skólagöngunni.