Lungnakrufning á Kleppjárnsreykjum

9.bekkur á Kleppjárnsreykjum er nú að læra um mannslíkamann. Til að öðlast betri skilning á efninu er oft betra að gera það áþreifanlegt sem varð heldur betur raunin þegar þau krufðu lungu úr sauðfé. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og við vonum að þekkingin sitji jafnvel enn betur eftir en eftir langan lestur á kennslubókunum.