Löng hefð er fyrir því að nemendur 5. bekkjar á Hvanneyri fái að gista eina nótt í skólanum í maí mánuði. Foreldrar gista með þeim og elda allir saman kvöldmat, svo er farið í leiki og spil og stundum horft á eitthvað skemmtilegt fyrir háttinn. Í þetta sinn hljóp heldur betur á snærið hjá þeim því slökkviliðið tók æfingu á fótboltavellinum um kvöldið og fengu krakkarnir að taka þátt. Þau voru hörð í horn að taka og létu slökkviliðið ekki komast upp með neitt múður á vellinum. Það varð sko ekki til að skyggja á gleðina. Þessari hefð fylgir alltaf mikill spenningur og gleði. Það voru svo hressir en misvel hvíldir krakkar sem tóku á móti okkur að morgni dags í skólanum.

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610

oplus_1048610
