Nemendur í 1.–4. bekk Varmalandsdeildar fóru nýlega í skemmtilega sveitaferða í Bakkakot þar sem þau fengu að upplifa íslenskt vor í sinni bestu mynd. Veðrið lék við hópinn og dagurinn einkenndist af gleði, útiveru og dýralífi.
Á bænum fengu nemendur að sjá nýfædd lömb og fræðast um lífið í sveitinni á þessum árstíma. Mikil eftirvænting ríkti þegar börnin fengu að halda á litlu lömbunum og margir voru sammála um að það hefði verið hápunktur ferðarinnar.
Krakkarnir nutu þess einnig að leika sér úti og vinsælt var að leika við vinalega hundinn á bænum sem fylgdi hópnum um svæðið.
Sveitaferðin tókst afar vel og var bæði lærdómsrík og skemmtileg. Nemendur komu glaðir heim eftir dag fullan af nýjum upplifunum og góðum minningum.

