Árshátíð Varmalandsdeildar

Árshátíð nemenda á yngsta stigi Grunnskóla Borgarfjarðar, Varmalandsdeild heppnaðist einstaklega vel í ár þar sem ánægja, samvinna og sköpunargleði voru í fyrirrúmi. Nemendur lögðu mikla vinnu í undirbúning sýningarinnar og stóðu sig öll með prýði þegar á sviðið var komið.

Á dagskránni voru atriði úr fjórum vel þekktum leikritum: Línu langsokk, Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum. Börnin sýndu mikinn metnað í túlkun sinni, hvort sem þau voru að leika eða syngja og áhorfendur nutu þess að sjá hversu vel þau höfðu tileinkað sér hlutverkin.

Undirbúningur fyrir slíka sýningu felur í sér mikinn lærdóm. Nemendur æfa sig í samvinnu, ábyrgð, framkomu og tjáningu auk þess að efla sjálfstraust sitt. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu jákvæð börnin voru í vinnuferlinu og hvernig þau studdu hvert annað í gegnum æfingarnar.

Árshátíðin var því ekki aðeins skemmtileg skemmtun heldur einnig dýrmæt reynsla sem mun án efa nýtast nemendum áfram í námi og leik.

Við þökkum Leikfélagi Stafholtstungna kærlega fyrir lán á leikmunum og foreldrar fá einnig þakkir fyrir frábært samstarf.