Í desember fengu nemendur í 3. bekk heimsókn frá Heiðari slökkviliðsstjóra sem fræddi þau um eldvarnir og mikilvægi brunavarna á heimilum. Nemendur hlýddu af áhuga og fengu meðal annars að læra um eldvarnarbúnað, viðbrögð við eldsvoða og hvernig best er að tryggja öryggi sitt og annarra.
Að fræðslunni lokinni tóku nemendur þátt í eldvarnargetraun þar sem þeir gátu nýtt sér nýfengna þekkingu. Dregið var úr innsendum lausnum og var einn nemandi úr okkar skóla svo heppinn að verða fyrir valinu.
Viðkomandi hlaut viðurkenningaskjal og verðlaun fyrir þátttöku sína. Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn og þökkum slökkviliðinu kærlega fyrir góða og fróðlega heimsókn.
Það er mikilvægt verkefni að fræða börn um eldvarnir og rétt viðbrögð í neyðartilvikum og erum við stolt af samstarfi okkar við slökkviliðið á svæðinu. Þessi samstarfsverkefni efla öryggisvitund og samstarf nemenda við aðra í samfélaginu.
Á meðfylgjandi mynd er vinningshafinn Haukur Axel Ólafsson, nemandi í 3. bekk á Varmalandsdeild ásamt Heiðari Erni Jónssyni slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar.
