Skólastarfið í jólabúningi á Kleppjárnsreykjum í desember.

Í desember leggja kennarar venju fremur metnað sinn í að hafa verkefni nemenda fjölbreytt og í allskyns jólabúningum enda jólaspenningur stigvaxandi með hverjum deginum í nemendahópnum.

Þau hafa verið að fylgjast með hinum ýmsu jóladagatölum bæði í stærðfræði, lífsleikni og furðufataþemum.

Leynivinaleikurinn hefur verið nýttur til jákvæðra samskipta og einnig hefur jóladagatal SOS  vakið umræður um ólíkar aðstæður barna í heiminum.

Nemendur skreyttu stofurnar sínar og til dæmis gerðu nemendur yngsta stigsins sér gamaldags jólatré.

Á Litlu jólunum ríkir svo hátíð í skólastofunum þar sem farið er í bingó, pakkaleikurinn sívinsæli er leikinn og að lokum borða allir saman hátíðarmat. Yndisleg samvera inn í langþráð jólaleyfi.