Þemadagar á Kleppjárnsreykjum

Á þemadögum í janúar var áhersla lögð á þá þætti sem verkefnið Framtíðarfólk byggir á, þ.e. heilbrigði bæði umhverfisins og okkar sjálfra. Settar voru upp nokkrar vinnustöðar sem nemendur gátu valið um, hvort þau vildu vinna að umhverfismálum, lýðheilsu eða hópefli. Nemendur unnu svo í aldursblönduðum hópum við ýmis verkefni sem svo voru kynnt á opnu húsi í lok þemadaga. Afraksturinn var margvíslegur, t.d. handbók með hópeflisleikjum, leiðbeiningar fyrir slökun, þrekæfingar og teygjur, líkan af af nýju byggingu skólans. Vinaverkefni þar sem nemendur yngri bekkja eignast félaga úr eldri bekkjum, leiðbeiningar um ruslaflokkun og svo mætti lengi telja. Dagarnir heppnuðust mjög vel, nemendur unnu einstaklega vel saman og gaman að sjá tengslin eflast á milli nemenda óháð aldri. Þemadagar sem þessir eru mjög mikilvægir, bæði til að brjóta upp hefðbundna kennslu, en einnig til að þjálfa nemendur í samvinnu.