Sýning á verkum eftir Bjarna Helgason

janúar 29, 2008
Næstkomandi laugardag kl. 16.00 opnar ungur Borgfirðingur sýningu í sal Listasafns í Safnahúsi. Þetta er Bjarni Helgason sem er grafískur hönnuður með meistaragráðu í „Media Arts“ frá Kent Institute of Art & Design í Bretlandi. Bjarni er ættaður frá Laugalandi í Stafholtstungum, alnafni afa síns sem þar býr. Á slóðinni
http://bjadddni.com/borgarnes/ má sjá frekari upplýsingar um Bjarna og er vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma og njóta verka hans við þetta eða síðara tækifæri.
Á sýningunni eru 6 prentuð verk í 1.5 x 1 m ljósakössum. Verkin eru unnin á síðustu árum, þau elstu frá árinu 2004 og þau yngstu frá þessu ári. Sýningin verður opin næstu þrjár vikurnar á opnunartíma Safnahúss, sjá www.safnahus.is – ALLIR VELKOMNIR.
 
Frétt með mynd er af einu verka Bjarna.

Share: