Ungmennasamband Borgarfjarðar óskar eftir starfsmanni á skrifstofu sambandsins í fjölbreytt og spennandi starf á sviði tómstundamála í Borgarbyggð. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni eru skipulagning og yfirumsjón með íþrótta- og tómstundaskóla fyrir börn í 1.-4.bekk, sumarstarfi grunnskólabarna og starfsemi félagsmiðstöðva í Borgarbyggð ásamt öðrum verkefnum á sviði tómstunda- og íþróttamála.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði uppeldis-, félags- eða tómstundamála er kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Grunnþekking á tölvum í t.d. word og excel.
- Þekking á íþrótta- og tómstundastarfi ungmenna er kostur.
Nánari upplýsingarum starfið og starfsemi UMSB gefur framkvæmdastjóri í síma: 869-7092 eða umsb@umsb.is
Umsóknarfrestur er til 19. október 2015 og skal skila umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið umsb@umsb.is eða á skrifstofu UMSB á Skallagrímsgötu 7a, 310 Borgarnesi.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað.