Sálfræðingur óskast til starfa við fjölskyldusvið Borgarbyggðar

desember 28, 2020
Featured image for “Sálfræðingur óskast til starfa við fjölskyldusvið Borgarbyggðar”

Staða sálfræðings við fjölskyldusvið Borgarbyggðar er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Störf sálfræðings eru á sviði barnaverndarnefndar og velferðarnefndar. Borgarbyggð þjónustar einnig Dalabyggð og Skorradal um barnavernd, félagsþjónustu og í málefnum fólks með fötlun.

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Á þeirri vegferð sem framundan er ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði að framúrskarandi þjónustu og öflugu vinnuumhverfi.

Erum við að leita að þér?

Starfssvið sálfræðings

  • Greining og meðferð barnaverndarmála.
  • Einstaklings- og fjölskyldumál fyrir félagsþjónustu, þ.m.t. þjónusta við fatlaða.
  • Þverfagleg teymisvinna með stofnunum, s.s. skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga og fjölskyldna.
  • Annast fræðslu fyrir stofnanir sveitafélagsins s.s. skóla, leikskóla og aðrar þjónustustofnanir, um barnavernd og aðra faglega þætti er lúta að sviði sálfræðings.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsréttindi sem sálfræðingur er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar, félagsþjónustu og af vinnu með fólki með fötlun.
  • Reynsla af meðferð fjölskyldumála.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni í þverfaglegu samstarfi.

Frekari upplýsingar um starfið 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna.  

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til atvinna@borgarbyggd.is fyrir 15. febrúar 2021.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, deildarstjóri félagsþjónustu, í síma 433 7100, netfang: vildis@borgarbyggd.is


Share: