Menningarsjóður Borgarbyggðar 2019-03-29

mars 29, 2019
Featured image for “Menningarsjóður Borgarbyggðar 2019-03-29”

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum

Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð. Styrkir eru verkefnatengdir.

Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu styrksins.

Hægt er að sækja um rafrænt í gegn um íbúagátt. Einnig má sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði sem finna má á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is  en þar er einnig að finna úthlutunarreglur sjóðsins.

Umsóknir skulu berast Ráðhúsi Borgarbyggðar (borgarbyggd@borgarbyggd.is ), Borgarbraut 14, í síðasta lagi þriðjudaginn 2. apríl n.k.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason netf. kristjangisla@borgarbyggd.is eða í s: 433-7100.

F.h stjórnar Menningarsjóðs Borgarbyggðar

Bjarki Þór Grönfeldt


Share: