Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi

mars 30, 2020
Featured image for “Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi”

Við leitum að öflugum einstaklingum í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2020

  • Umsjónarkennsla á miðstigi
  • Kennsla á unglingastigi, þarf að geta kennt flestar greinar.

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
  • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.

Óskað er eftir einstaklingum sem er tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hefur hugrekki til þess að feta nýjar leiðir.

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.–10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar. Skólinn er Uppbyggingarskóli ásamt því að vera í  teymiskennslu.

Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.

Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2020 

Umsóknir skal senda til Júlíu Guðjónsdóttur skólastjóra, julia@grunnborg.is einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 862-1519.

 

 


Share: