Kynningarfundur – Umhverfisstjórnun fyrirtækja – Umhverfisvitinn

apríl 13, 2004
Fimmtudaginn 15. apríl 2004, klukkan 20:30 verður haldinn á Hótel Borgarnesi kynningarfundur um umhverfisstjórnun fyrirtækja og Umhverfisvitann, sem er umhverfisvottunarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Borgarbyggð hefur ákveðið að gerast aðili að þessu kerfi og verður á fundinum kynnt hvað felst í þessu kerfi og hvernig því verður komið á í sveitarfélaginu.
 
Einnig verður á fundinum kynnt umhverfisstarf í fyrirtækinu Hópbílar, en það hefur unnið að því að fá vottun samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfinu ISO 14001. Sagt verður frá þeim ávinningi sem fyrirtækið hefur náð með aðgerðum sínum í umhverfismálum.
 
Efni fundarins:
 

  • Ragnhildur Helga Jónsdóttirumhverfisfræðingur á skrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi kynnir Umhverfisvitann
    • Umhverfisstjórnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
    • Ávinningur fyrirtækja af umhverfisvitanum.
  • Pálmar Sigurðsson umhverfisstjóri Hópbíla
    • Hvers vegna umhverfisstjórnun í fyrirtækjum?
    • Umhverfiskröfur til byrgja?
  • Umræður og fyrirspurnir

 

Share: