Laus störf við grunnskóla Borgarbyggðar

apríl 7, 2004
Grunnskólinn í Borgarnesi og Varmalandsskóli auglýsa eftir kennurum fyrir skólaárið 2004-2005.
 

Grunnskólinn í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með u.þ.b. 330 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn rekur metnaðarfullt skólastarf, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan nemenda. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðum kennurum og lögð er áhersla á frumkvæði og skólaþróun. Verið velkomin að kynna ykkur aðstæður í skólanum, slóðin á heimasíðu skólans er http://www.grunnborg.is
Eftirfarandi kennarar óskast til starfa næsta vetur:
Heimilisfræðikennari, tónmenntakennari og umsjónarkennarar á yngsta- og miðstigi.
Umsækjandi þarf að hafa kennarapróf, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar.
Umsóknir sendist til skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi, Gunnlaugsgötu 13, 310 Borgarnesi.
Frekari upplýsingar veita Hilmar Már Arason, skólastjóri (hilmara@grunnborg.is) og Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðarskólastjóri (liljasol@grunnborg.is), sími 437 1229 eða 437 1208.
 
 

Varmalandsskóli í Borgarfirði

Lausar stöður:
Ertu tónmenntakennari, sérkennari eða almennur kennari !
Okkur vantar kennara til þess að kenna m.a. dönsku og ensku.
Vegna fæðingarorlofs vantar kennara til þess að kenna stærðfræði á unglingastigi frá byrjun skólaárs til áramóta.
Komdu, skoðaðu og ræddu málin.
 
Upplýsingar gefur Flemming Jessen, sími 4301502 / 4350170 / 8401520
netf. fjessen@varmaland.is
 

Share: