Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar fær viðurkenningu frá Landvernd

febrúar 28, 2017
Featured image for “Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar fær viðurkenningu frá Landvernd”

Landvernd stóð fyrir ráðstefnu um Skóla á grænni grein í byrjun febrúar, en það er stærsta verkefni í menntun til sjálfbærni á Íslandi og í heiminum öllum. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra ávörpuðu ráðstefnugestina og veittu tveimur skólum sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa unnið flesta Grænfána. Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar var einn þeirra en hann hefur verið Skóli á grænni grein frá því að verkefnið hóf göngu sína hér á landi árið 2000. Tóku Ingibjörg Inga skólastjóri og Helga Jensína deildarstjóri á Hvanneyri á móti viðurkenningu úr hendi Bjartar Ólafsdóttur umhverfisráðherra.

Skólar á grænni grein er mikilvægt verkefni fyrir innleiðingu sjálfbærni í skólastarfi en það styður við alla grunnþætti aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla þar sem sjálfbærni felur í sér jafnrétti, lýðræði og mannréttindi, heilbrigði og velferð.

Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni sem hefur það að markmiði að að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.


Share: