Hreinsunarátak í þéttbýli 17.-24.apríl 2020

apríl 7, 2020
Featured image for “Hreinsunarátak í þéttbýli 17.-24.apríl 2020”

Gámar fyrir gróðurúrgang, málma, og timbur verða aðgengilegir þessa viku á eftirfarandi stöðum:

  • Bifröst 
  • Varmaland
  • Kleppjárnsreykir
  • Hvanneyri

Þegar gámar eru að fyllast, hafið samband við Gunnar hjá ÍGF, í síma 840-5847.

ATH að gámar eru EKKI fyrir úr sér gengin ökutæki!

Minnt er á ákvæði byggingarreglugerðar:
„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ (112/2012)

Afgreiðslutímar í móttökustöð við Sólbakka
Gámastöðin við Sólbakka er opin alla daga: sunnudaga til föstudags milli klukkan 14:00 og 18:00 og laugardaga milli klukkan 10:00 og 14:00


Share: