Fundur með fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð

maí 6, 2020
Featured image for “Fundur með fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð”

Mánudaginn 11. maí n.k. kl. 09:00 er fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð boðið að taka þátt í samtali við Atvinnu-, markaðs og menningarmálanefnd, sveitarstjóra og byggðarráð á fjarfundi.

Fundurinn er hugsaður til upplýsingaöflunar fyrir sveitarfélagið vegna Covid-19.

Fulltrúar sem vilja taka þátt í fundinum eru beðnir um að setja sig í samband við verkefnastjóra atvinnu-, markaðs og menningarmála í netfangið amm@borgarbyggd.is. Fundurinn verður fjarfundur og fá fundarmenn senda vefslóð til að tengjast inn á fundinn.


Share: