Bætt aðgengi í innilauginni í Borgarnesi

júní 18, 2007
Fyrir nokkru síðan kom formaður félags eldriborgara með beiðni um bætt aðgengi fyrir fullorðið fólk að innilauginni í Borgarnesi.
 
Vel var tekið í erindið og nú er kominn í innilaugina sérhannaður stigi með stórum og fínum tröppum fyrir þá sem eiga erfitt með að fóta sig niður þær tröppur sem fyrir eru í innilauginni.
Á myndinni er Ragnar Olgeirsson hvatamaður að þessu verkefni að vígja stigann góða. Viljum við nota tækifærið og bjóða eldri borgurum og þeim sem hafa átt erfitt með að ganga til laugar sérstaklega velkomin til okkar í sund og heita potta.
 
Innilaug er öllu jafna höfð 32° heit þannig að það er notalegt að stunda hana og mikil heilsubót að fara í heitu pottana góðu.
 
 
 
 
 
Á þessari mynd eru glaðir pottormar að ræða bæjarmálin.
 
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
 

Share: