Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Stóra Brákarey

ágúst 18, 2014
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 14. ágúst 2014. Breytingin felst í að landnotkun í Stóru-Brákarey verði breytt samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagsettri 8. ágúst 2014. Skipulagssvæðið tekur til Stóru Brákareyar.

Tillagan mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarbyggð, frá og með 18. ágúst til og með 28. september nk. Athugasemdarfrestur er til sama tíma. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Tillöguna má skoða hér.
Lulu Munk Andersen
skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

 

Share: