Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Bjarnhólar í landi Hamars

ágúst 19, 2014
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar ásamt umhverfisskýrslu samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 10. apríl 2014. Breytingin felst í að landnotkun við Bjarnhóla í landi Hamars verði breytt úr landbúnaði í sorpförgun og efnistöku samkvæmt uppdráttum og greinargerð dags. 8. apríl 2014. Skipulagssvæðið tekur til 9,8 ha.

Tillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarbyggð, frá og með 18. ágúst til og með 29. september, athugasemdarfrestur er til sama tíma. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is og mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Tillagan hefur áður verið auglýst en var þá ekki auglýst í Lögbirtingarblaðinu en það hefur nú verið gert. Því er frestur sem gefinn var í áður birtum auglýsingum í Morgunblaði, Skessuhorni og á heimasíðu Borgarbyggðar, framlengdur.
Greinargerð með tillögunni hér.
Tillagan hér.
Lulu Munk Andersen,
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
 

Share: