Andabær – laus störf

september 20, 2016
Featured image for “Andabær – laus störf”

Leikskólinn Andabær, Hvanneyri – Leikskólakennarar – Deildarstjóri

Heilsuleikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennurum. Um er að ræða 100% stöðu og 70% stöðu.

Einnig auglýsum við eftir leikskólakennara í 100% stöðu til að leysa af tímabundið starf deildarstjóra.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum.

Helstu verkefni og ábyrgð deildarstjóra:

Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn leikskólastjóra.

Menntun og færnikröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Færni í að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Miðað er við ráðningar í störfin í október 2016 eftir samkomulagi viðkomandi starfsmanns og leikskólastjóra.

Umsóknarfrestur er til 30. september 2016.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurjónsson leikskólastjóri eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 433-7170

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega til leikskólastjóra á netfangið sigurdurs@borgarbyggd.is


Share: