Vorhátíð Samkórs Mýramanna var haldin í Lyngbrekku síðastliðinn föstudag. Vel á annað hundrað manns sóttu hátíðina og nutu fram í rauða nóttina. Auk söngs Samkórsins, undir stjórn Zsuzsönnu Budai var að venju gestakór, Kirkjukór Hrunaprestakalls sem kom fram undir stjórn Edit Molár. Samkór Mýramanna var stofnaður árið 1981 og átti því 25 ára afmæli í fyrra. Æfingasetur kórsins er í …
Styrkir úr Húsaverndunarsjóði
Nýverið var úthlutað styrkjum úr Húsverndunarsjóði Borgarbyggðar, alls að upphæð 1.400.000. Að sjóðnum standa Borgarbyggð og Sparisjóður Mýrasýslu og auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Að þessu sinni bárust einungis tvær umsóknir, báðar úr Borgarnesi. Umsóknirnar töldust báðar hæfar samkvæmt mati menningarnefndar Borgarbyggðar og stjórnar Húsaverndunarsjóðs. Styrkina hlutu: Hollvinasamtök Englendingavíkur vegna lagfæringa á gömlu verslunarhúsunum í …
Skipulagsauglýsingar 2007-05-14
Fyrir liggja tillögur að deiliskipulagi fyrir hreinsistöð fráveitu við Bifröst, hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri og hreinsistöð fráveitu á Varmalandi. Þá liggur fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykholts 1986-2006 og tillaga að deiliskipulagi fyrir skólphreinsistöð við Reykholt, Borgarbyggð. Hver sá sem hefur athugasemdir við tillögurnar skal gera það skriflegar og senda þær á framkvæmdasvið Borgarbyggðar, Ráðhúsinu Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. …
Um skipan í kjördeilda í Borgarbyggð
Við alþingiskosningar laugardaginn 12. maí 2007 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Grunnskólanum í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9.00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Kjörfundur hefst kl. 12.00. Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og …
Starfsmenn Ráðhúss hjóla í vinnuna
Nokkrir starfamenn í Ráðhúsi Borgarbyggðar taka nú þátt í heilsu- og hvatningarátaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Átakið stendur yfir í þrjár vikur, frá 2. – 22. maí 2007. Starfsmenn Ráðhússins hvetja sveitunga sína til að ganga og hjóla sem allra mest. Fylgjast …
Fínn fundur um silungsveiði
Silungsveiði í Borgarbyggð var umræðuefni á opnum fundi atvinnu- og markaðsnefndar sem haldinn var í gær á Hótel Hamri. Tilgangurinn var að kanna vilja og áhuga heimamanna á að auka möguleika á silungsveiði í sveitarfélaginu og um leið nýta betur þau hlunnindi sem eru í þeim fólgin. Atvinnu- og markaðsnefnd hefur um skeið verið að skoða þessa möguleika en segja …
Vortónleikaröð Tónlistaskóla Borgarfjarðar
Vortónleikaröð Tónlistaskóla Borgarfjarðar hefst í kvöld. Söngdeildin ríður á vaðið með tónleikum í sal skólans að Borgarbraut 23 og hefjast þeir kl. 20.00. Fimmtudag 10. maí og föstudag 11. maí verða tónleikar í skólanum kl. 18.00. Í næstu viku verða tónleikar í skólanum mánudaginn 14. maí og þriðjudaginn 15. maí kl. 18.00 og miðvikudaginn 16. maí kl. 17:00. Tvennir tónleikar …
Silungsveiði í héraði – opinn fundur
Atvinnu- og markaðsnefnd Borgarbyggðar boðar til opins fundar um silungsveiði í héraði þriðjudaginn 8. maí kl. 20.00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Hamri. Tilgangur fundarins er að kanna vilja og áhuga heimamanna á að auka möguleika á silungsveiði í héraði og um leið nýta betur þau hlunnindi sem í þeim eru fólgin. Dagskrá: 1. Þór Þorsteinsson, formaður atvinnu- og markaðsnefndar …
Skipulagsauglýsingar 2007-05-07
Fyrir liggja tillögur að deiliskipulagsbreytingum við Vallarás í Borgarnesi og svæði D á Hvanneyri, sem og tillaga að deiliskipulagi við Vindás/Selás í Hamarslandi. Hver sá sem hefur athugasemdir við tillögurnar skal gera það skriflegar og senda þær á framkvæmdasvið Borgarbyggðar, Ráðhúsinu Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Vallarás Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 …
Akstursstyrkir – framlengdur umsóknarfrestur
Í desember ár hvert eru styrkir vegna aksturs barna og unglinga úr dreifbýli á skipulagðar æfingar á vegum félagasamtaka í Borgarbyggð afgreiddir. Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest á styrkjum fyrir árið 2006 til 1. júní n.k. Það er þannig enn hægt að sækja um vegna ársins 2006, skv. reglugerð þar um og skal umsóknum skilað til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa …