Vinnuskólinn fegrar og bætir

Unglingarnir í Vinnuskóla Borgarbyggðar hafa verið að störfum víða um sveitarfélagið frá því í byrjun júní. Eitt helsta verkefni unglinganna í Borgarnesi undanfarna daga hefur verið að fegra og snyrta opið svæði við Böðvarsgötu, en það svæði hefur til langs tíma verið þyrnir í augum margra. Vinnuskólinn hefur nú gert göngustíga, þökulagt, kantskorið, hreinsað beð og fleira. Gert er ráð …

Útivistar notið í blíðviðri

Veðrið hefur leikið við flesta Íslendinga undanfarna daga. Við í Borgarbyggð höfum ekki farið varhluta af því. Þegar veðrið er svona gott sést enn betur en ella hversu miklir afþreyingamöguleikar eru í héraðinu. Náttúran sjálf spilar þar stærstan hlut með alla sína dali, fjöll, fjörur, fossa og fleira og fleira. Sagan hefur líka mikið aðdráttarafla á gesti, bæði innlenda sem …

Þjónustukönnun í Borgarbyggð

Eins og fram hefur komið hér á vef Borgarbyggðar, í fréttabréfi og víðar stendur nú yfir könnun á þjónustu sveitarfélagsins. Í byrjun júnímánaðar höfðu fulltrúar frá Capacent Gallup samband við 1.000 íbúa Borgarbyggðar í þeim tilgangi að bjóða þeim að taka þátt í þjónustukönnuninni. Alls samþykktu 653 íbúar að taka þátt og hafa fengið senda til sín spurningalista. Enn eiga …

Bikarmót Vesturlands í hestaíþróttum

Bikarmót Vesturlands í hestaíþróttum fer fram að Vindási við Borgarnes á morgun, laugardag. Yfir 60 keppendur munu taka þátt og eru skráningar með mesta móti eða alls 130. Mótið hefst með forkeppni í fjórgangi opnum flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki og loks barnaflokki. Eftir hádegi verður keppt í fimmgangi, opnum flokki og ungmenna. Forkeppni í tölti tekur síðan við. Byrjað er á …

Sparisjóðsmótið í knattspyrnu

Um síðastliðna helgi fór Sparisjóðsmótið í knattspyrnu fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Var þetta 14. árið í röð sem mótið er haldið, en fyrstu árin var það Búnaðarbankinn, síðan KB-banki, sem styrkti mótið. Keppt var í fjórða og fimmta flokki stúlkna og fjórða til sjöunda flokki drengja. Tíu 10 félög sendu alls 42 lið til keppninnar, þar af eitt félag …

Mímis-ungmenni í ævintýraferð

Fyrir skömmu héldu 14 ungmenni úr Mími ungmennahúsi í sannkallaða ævintýraferð norður í Skagafjörð. Það var húsráð Mímis sem skipulagði ferðina fyrir ungmenni sem hafa tekið þátt í starfi Mímis í vetur. Farið var í siglingu (“rafting”) niður Jökulsá vestri í inndölum Skagafjarðar. Ungmennin voru mjög ánægð með ferðina og sögðu bátsferðina niður ánna hafa verið “algjört adrenalínkikk“.   Mímir …

Skipulagsauglýsing – Grímsstaðir

Borgarbyggð auglýsir hér með eftir athugasemdum við deiliskipulagsbreytingu frístundabyggðar í landi Grímsstaða. Deiliskipulagið verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá og með 27.06.07 til 25.07.07. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 09.08.07. Sjá nánar hér.  

Vel heppnað vinabæjamót

Gestir frá norrænum vinabæjum Borgarbyggðar sóttu sveitarfélagið heim á fjölmennu vinabæjamóti um helgina. Um 120 manns komu frá eftirtöldum bæjum: Falkenberg í Svíþjóð, Ullensaker í Noregi, Odsherred Kommune í Danmörku og Leirvík í Færeyjum. Vinabæjamótið var haldið sömu helgina og Sparisjóðsmótið í fótbolta og af því tilefni kom einnig á staðinn fótboltalið frá Ullensaker ásamt þjálfurum sínum. Blíðskaparveður var alla …

Slökkviliðið fær Res-Q-Jack björgunarstoðir

Nýverið afhenti Lionsklúbbur Borgarness Slökkviliði Borgarbyggðar Res-Q-Jack björgunarstoðir til að nota í tækjabílnum. Slíkar stoðir eru hjá nokkrum slökkviliðum um landið og sú gerð sem Slökkviliðið fékk er þriggja stoða og með tjakki. Hlutverk stoðanna er að styðja við bíla, sem í umferðaslysum hafa lent annað hvort á toppnum eða á hliðinni. Stoðirnar styðja þannig við bílflökin á meðan þau …

Refa- og minkaveiðimenn í Borgarbyggð

Sveitarfélögum ber að gera ráðstafanir til þess að draga úr hættu á tjóni af völdum refa og minka. Til þess að ná árangri við veiðarnar er sveitarfélögum heimilt að greiða eingöngu verðlaun til ráðinna veiðimanna og fer Borgarbyggð þá leið. Hér að neðan er listi yfir ráðna refa-og minkaveiðimenn í Borgarbyggð árið 2007. Kolbeinsstaðahreppur Guðmundur Árnason, refaveiði Guðmundur Símonarson, refa- …