Á morgun þriðjudag frá kl.17.30 verða að störfum rýnihópar í ráðhúsi Borgarbyggðar sem eru að fara yfir þjónustukönnunina sem unnin var fyrir Borgarbyggð síðastliðið sumar. Rýnihóparnir eru tveir, annar skipaður fólki á aldrinum 25 til 44 ára og hinn skipaður fólki á aldrinum 45 til 65 ára og eiga þeir að ræða þjónustu sveitarfélagsins og rýna í könnunina. Hér má …
Byggðarráð Borgarbyggðar vill bættar samgöngur milli Borgarness og Reykjavíkur
Á fundi sínum þann 23. janúar síðastliðinn ræddi Byggðarráð Borgarbyggðar ályktanir atvinnu- og markaðsnefndar og stjórnar Faxaflóahafna um nauðsyn þess að hefjast handa við lagningu Sundabrautar og aðrar úrbætur á Vesturlandsvegi. Að umræðum loknum samþykkti Byggðaráð eftirfarandi bókun: „Byggðarráð Borgarbyggðar hvetur samgönguráðherra til að beita sér fyrir bættum samgöngum milli Borgarness og Reykjavíkur. Lagning Sundabrautar og úrbætur á Vesturlandsvegi eru …
Sorphirðudagatal 2008
Sorphirðudagatal 2008 fyrir Borgarbyggð er komið á heimasíðuna. Hér má nálgast það. Sorphirðudagatalið verður sent til allra íbúa með fréttabréfinu sem kemur út um miðjan febrúar. Einnig er sorphirðudagatalið ávallt hér vinstra megin á heimasíðunni undir ,,þjónusta við íbúa“ Mynd: Björg Gunnarsdóttir
Ný hunda- og kattasamþykkt fyrir Borgarbyggð
Ný hunda- og kattasamþykkt fyrir Borgarbyggð öðlaðist gildi 17. janúar síðastliðinn með staðfestingu frá Umhverfisráðuneytinu. Hér má nálgast samþykktina. Einnig verða þær reglugerðir sem vísað er til í samþykktinni aðgengilegar á heimasíðunni undir ,,hreinlætismál“ Íbúar á þeim þéttbýlisstöðum sem tilgreindir eru í samþykktinni eru beðnir um að skrá hunda sína og ketti hið fyrsta á skrifstofu Borgarbyggðar eða á …
Óþekkt kona
Sú nýjung hefur verið tekin upp á heimasíðu Safnahúss Borgarfjarðar að setja þar reglubundið inn ljósmyndir sem fólk er beðið um aðstoð við að bera kennsl á. Þetta er gert á vegum skjalasafns Borgarfjarðar og með þessum hætti er verið að leita til velunnara safnanna með aðstoð við að flokka og greina myndir á safninu. Fyrsta myndin er af eldri …
Óskað eftir starfsfólki við Grunnskóla Borgarfjarðar
Starfsfólk óskast í eftirfarandi störf hjá Grunnskóla Borgarfjarðar. Skólasel á Hvanneyri Óskum eftir að ráða aðstoðamann í skólaselið mánudaga til fimmtudaga u.þ.b. 3 klst. á dag. Nánari upplýsingar veita Ástríður í síma 4370009 og Guðlaugur í síma 4351171 Húsvarsla á Kleppjárnsreykjum Einnig vantar mann í húsvörslu á Kleppjárnsreykjum, en þar er um að ræða 30% úr starfi. Nánari upplýsingar veitir …
Skólahald í Grunnskóla Borgarfjarðar fellur niður í dag
Skólahald í Grunnskóla Borgarfjarðar fellur niður í dag vegna óveðurs og hálku. Foreldrar yngri barna á Hvanneyri eru beðnir að halda þeim heima á meðan veðrið gengur yfir. Fréttir af söngvaraskemmtun sem fyrirhuguð var í kvöld verða birtar á heimasíðu Grunnskóla Borgarfjarðar þegar það mál hefur verið skoðað. Mynd: Björg Gunnarsdóttir
Opinn íbúafundur um afrétta- og fjallskilamál í Borgarbyggð í kvöld
Vinnuhópur um afrétta- og fjallskilamál heldur opinn íbúafund á Hótelinu í Borgarnesi, í kvöld, 22. janúar og hefst hann kl. 20:00. Þar verða framsöguerindi og umræður í vinnuhópum. Áhugasamir íbúar eru hvattir til að mæta. Mynd af fé í Þverárrétt er fengin úr myndasafni Skessuhorns.
Þorrablót frá bóndadegi að þorraþræl
Þorrinn hefst ávallt í þrettándu viku vetrar á föstudegi á svonefndum bóndadegi, þá er vetur hálfnaður. Honum lýkur á þorraþræl degi fyrir konudag sem markar upphaf Góu. Bóndadagur er núna 25. janúar og þann dag er fyrsta þorrablótið af sjö í Borgarbyggð. Þorrablótin í Borgarbyggð eru haldin í: -Valfelli 25. janúar -Brún 26. janúar -Lyngbrekku 1. febrúar -Þinghamri 2. …
Málþing unglinga og foreldra
Unglingum í 8.-10. bekk í grunnskólum Borgarbyggðar er boðið til málþings, ásamt foreldum sínum, um málefni unglinga, laugardaginn 26. janúar kl. 10.00 í Félagsmiðstöðinni Óðal. Sjá hér auglýsingu um viðburðinn.