Byggingu Menntaskóla Borgarfjarðar miðar vel áfram þessa dagana og koparklæðning hússins langt komin. Rétt eftir ásetningu hefur koparinn á sér gullinn blæ en við snertingu við súrefni tekur hann fljótlega sinn rétta lit. Vinna við hátíðarsal hússins gengur einnig vel, og vænta má mikils af honum fyrir borgfirskt menningarlíf ekki síður en fyrir skólann sjálfan. Verið er að ganga …
Vel tekið á móti gestum í Reykholti
Sr. Geir Waage er þekktur fyrir hversu vel hann tekur á móti ferðamönnum sem sækja Reykholt heim. Hann segir frá af stakri þekkingu og atburðir miðalda lifna við í meðförum hans. Í veðurblíðunni í dag tók hann á móti hópi þýskra ferðamanna úr skemmtiferðaskipinu Alexander von Humboldt. Þegar farið var um Reykholtsstað var gengið þar hjá sem bær Snorra Sturlusonar …
Reyholtshátíð hefst í kvöld
Reykholtshátíð hefst með látum í kvöld með tónleikum Karlakórs St.Basil dómkirkjunnar í Moskvu í Reykholtskirkju. Dagskrá hátíðarinnar er þetta árið er stórglæsileg en hana má sjá í heild sinni á www.reykholtshatid.is, þar má einnig finna allar nánari upplýsingar um hátíðina. Hátíðin fer fram í Reykholtskirkju og eru tónleikar eftirfarandi: Miðvikudagur 23/07 kl.20:00Karlakór St.Basil-dómkirkjunnar í …
Ganga frá Stórahrauni fellur niður
Vegna lélegs skyggnis mun gangan sem fara átti frá Stórahrauni kl.14 í dag falla niður. Ganga átti Þrællyndisgötu að Snorrastöðum.
Konur ganga til góðs
Borgfirskar konur undir stjórn Önnu Guðmundsdóttur á Borg á Mýrum hafa gengið til liðs við samtökin Göngum saman í átaki og fjáröflun til styrktar rannsóknum á krabbameini. Gengið er á mánudagskvöldum í sumar og hér sjást hressar konur sem gengu um 7 km í Borgarnesi í gærkvöldi. Göngunni verður haldið áfam næsta mánudag, þann 28. júlí, á Hvanneyri. Hist verður …
Útboð í verkið Gatnagerð Hvanneyri
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Gatnagerð Hvanneyri – Túngata og Arnarflöt“: Helstu magntölur eru: Gröftur: Fylling: Fjarlægja steyptar gangstéttar: Jöfnunarlag undir malbik: Malbik, 50 mm: Kantsteinn, 15 cm: Steyptar gangstéttar: 130 m³ 130 m³ 125 m 385 m² 1.430 m² 330 m 442 m² Útboðsgögn verða afhent á geisladiski og án endurgjalds í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, á skrifstofutíma …
Vestur-íslenskt ungt fólk á ferð
Skallagrímsgarður í Borgarnesi skartaði sínu fegursta í dag þegar meðfylgjandi mynd var tekin af hópi Vestur-íslensks ungs fólks sem þar var statt á vegum Snorra verkefnisins. Hópurinn snæddi nesti í garðinum á leið sinni vestur á Snæfellsnes. Unga fólkið hefur dvalið hjá íslenskum ættmennum sínum víða um land undanfarið og tvær stúlkur úr hópnum hafa dvalið í Borgarnesi og á …
Reykholtshátíð nálgast
Hin árlega Reykholtshátíð verður haldin dagana 23 – 27 júlí í kirkjunni í Reykholti. Í ár hefst hátíðin á tónleikum karlakórs St. Basil-dómkirkjunnar í Moskvu sem heldur þrenna tónleika á hátíðinni. Kórinn sem heldur á lofti hinni áhrifamiklu rússnesku karlakórahefð hefur getið sér gott orð víða um heim. St. Basil kórinn flytur m.a. rússnesk þjóðlög, miðaldatónlist og lög eftir rússnesk …
Íslenski safnadagurinn á sunnudaginn
Tvö söfn í Borgarfirði taka þátt í íslenska safnadeginum í ár, en hann er haldinn annan sunnudag í júlí ár hvert og var fyrst haldinn árið 1997. Í þetta sinn er það því sunnudagurinn 13. júlí. Markmiðið með þessu er að m.a. vekja fólk til vitundar um mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar hinna sameiginlegu verðmæta þjóðarinnar. Söfn víða …
Leiðrétting á framsögn neytendasamtakanna á æfingagjöldum
Knattspyrnudeild Skallagríms vill koma á framfæri leiðréttingu á framsögn neytendasamtakana á æfingagjöldum knattspyrnufélaga. Þar er kemur fram að dýrast á landinu er að æfa hjá Skallagrími eða 50.400 kr á ári. Þetta er alfarið rangt. (sjá nánar: http://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=6413&ew_0_a_id=309036). Sú aðferðarfræði sem notuð hefur verið við útreikning í þessari könnun er röng þ.e. sumargjaldið sem er 4.200 kr. hefur verið …