Fyrirhuguðum fundi um skólamál sem vera átti á Hvanneyri í kvöld hefur verið frestað til þriðjudagsins 5. maí kl. 20.30.
Karlakór Reykjavíkur í Geirabakaríi
Karlakór Reykjavíkur verður með ljúfan morgunsöng í Geirabakarí að morgni Verkalýðsdagsins 1. maí. Kórinn kemur við í bakaríinu upp úr kl. 9.00 og syngur nokkur lög. Allir velkomnir.
Aðalfundur Samfés haldinn í Reykholti Borgarfirði
Bjarni, Heiðrún, Lúðvík, Sissi og Atli í ReykholtiAðalfundur Samfés samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi var haldinn í Reykholti Borgarfirði fimmtudaginn 16. apríl s.l. Um 70 – 80 fulltrúar úr félagsmiðstöðvum landsins mættu en félagsmiðstöðvar innan samtakanna eru nú rúmlega hundrað talsins. Miklar og fjörugar umræður voru á fundinum að vanda og ljóst að Samfés eins og önnur félög …
Fundur um framtíð skólahalds – 2009
Fræðslunefnd Borgarbyggðar stendur fyrir umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.30 í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. (3. hæð) Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.
Hallsteinssalur í Safnahúsi
Á sumardaginn fyrsta var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi sýning á verkum úr listaverkasafni hins mæta listvinar Hallsteins Sveinssonar frá Eskiholti. Við þetta sama tækifæri var sal hússins gefið nafn og heitir hann nú Hallsteinssalur. Sýningin er tileinkuð Bjarna Bachmann safnverði sem vann ötullegt starf fyrir söfnin í Borgarfirði um aldarfjórðungsskeið. Verkin eru eftir marga af þekktustu listamönnum landsins …
Sópun á götum og gangstéttum
Nú í vikunni og fram í næstu viku verða gangstéttar og götur sópaðar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Íbúar eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að sópun geti gengið greiðlega. Það er fyrirtækið HS-Verktak sem mun annast verkið. Hafa má samband við Halldór hjá HS-Verktak í síma 892-3044 varðandi ábendingar eða nánari upplýsingar um verkið.
Matjurtagarðar í Borgarbyggð
Íbúum Borgarbyggðar gefst kostur á að taka á leigu matjurtagarða og rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Matjurtargarðarnir eru við gróðrastöðina Gleym-mér-ei í Borgarnesi og við gömlu loðdýrahúsin á Hvanneyri. Í boði eru tvær stærðir garða í Borgarnesi og þrjár á Hvanneyri. Leiguverð er á bilinu 1 – 5.000 kr. eftir stærð. Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér …
Hreinsunardagar í Borgarbyggð
Nú stendur yfir hreinsunarátak í Borgarbyggð og mun það standa fram yfir miðjan maí. Fyrsta sópun sumarsins á gangstéttum og götum er hafin. Draga þarf töluvert úr þjónustu vegna hreinsunarátaks í ár miðað við fyrri ár og því hvetjum við íbúa og starfsmenn fyrirtækja og stofnana að taka virkan þátt í því að halda sveitarfélaginu hreinu með því að þrífa …
Góð æfing hjá Slökkviliði Borgarbyggðar
Síðastliðinn laugardag var samæfing hjá Slökkviliði Borgarbyggðar. Stöðvarnar þrjár, í Reykholti, á Hvanneyri og í Borgarnesi tóku þátt í æfingunni sem fram fór í Fíflholtum. Á þessum þremur stöðvum eru 41 slökkviliðsmenn skráðir til starfa. Af þeim mættu 34 liðsmenn til æfingarinnar og verður það að teljast mjög góð þátttaka sem sýnir mikinn áhuga og samheldni í slökkviliðinu. Gamla íbúðarhúsið …
Aukasýning á Línu langsokk
Aukasýning verður á leikritinu um Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren, í Brún í Bæjarsveit á Sumardaginn fyrsta 23. apríl kl. 19:00. Miðapantanir hjá Betu í síma 661-2629. Miðaverð kr. 2000.- Takmarkaður miðafjöldi.