Útskrift, tónleikar, leiksýning og Útifjör

Menntaskóli Borgarfjarðar útskrifar sína fyrstu stúdenta í dag. Athöfnin verður kl. 14.00 og eru allir velunnarar skólans boðnir velkomnir. Um margt gott er síðan að velja um helgina ef fólk vill njóta menningar eða útiveru. Kvöldið í kvöld er gott dæmi um fjölbreytileikann því þá hefst hátíðin Útifjör sem björgunarsveitirnar í Borgarfirði; Brák, Heiðar og Ok, standa fyrir um helgina. …

Sumaropnun sundlauga í Borgarbyggð

Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi Virka daga frá kl. 06.30 – 21.00 Um helgar frá kl. 09.00 – 18.00 Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum Sumaropnun frá 2. júní – 17. ágúst Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.00 – 21.00 Miðvikudaga og föstudaga frá kl. 13.00 – 18.00 Um helgar frá kl. 13.00 – 18.00 Íþróttamiðstöðin Varmalandi Sumaropnun frá 12. júní – 17. ágúst Þriðjudags og …

Sumardvöl fyrir heldri borgara í júní – fræðsla, skemmtun útivist

Háskólinn á Bifröst býður aldurshópnum 60+ upp á 5 daga dvöl á Bifröst dagana 8.-12. júní þar sem áhersla verður lögð á fræðslu, skemmtun og útivist í einstöku umhverfi skólans í Borgarfirði. Markmiðið er að þátttakendur njóti fjölbreyttrar dagskrár með fræðsluerindum og ráðgjöf um ýmis brýn málefni líðandi stundar. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra setur dagskrána. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, …

Börn í 100 ár – sumaropnun

Sýningin Börn í 100 ár í Safnahúsi hefur nú verið opnuð fyrir sumarið og verður opið alla daga frá 13.00 -18.00 fram að 1. september. Þetta á jafnt við um virka daga og helgar- og hátíðisdaga og því verður einnig opið á 17. júní svo dæmi sé tekið. Sýningin hefur hlotið einróma lof þeirra sem hana hafa sótt, ekki síst …

Atvinna fyrir framhaldsskólanema

Framhaldsskólanemar án atvinnu athugið   Á fundi í Mími ungmennahúsi s.l. mánudag sem Ungmennaráð Borgarabyggðar stóð fyrir kom í ljós að um 10 nemendur á framhaldsskólastigi sem hafa ekki fengið vinnu í sumar. Góð umræða var á fundinum um mikilvægi sumarvinnu fyrir framhaldskólanema og mikilvægi vinnu almennt.   Nú hefur Háskólinn á Bifröst boðið þessum hópi verkefni og hefst sú …

Safnahús: sumarlestur barna

Héraðsbókasafnið efnir nú í annað sinn til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, frá 5. júní – 5. ágúst. Markmiðið með verkefninu er að nemendur viðhaldi og þjálfi þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn. Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er unnið í samstarfi við grunnskólana á svæðinu. Börn á þessum aldri skrá sig …

Atvinnuátak í Borgarbyggð í sumar

Á fundi sínum 6. maí síðastliðinn ákvað Byggðaráð Borgarbyggðar að efna til atvinnuátaks í Borgarfirði í samstarfi við Vinnumálastofnun. Um verður að ræða átaksverkefni á sviði skógræktar, fegrunar umhverfis og varðveislu menningarverðmæta. Átak þetta er unnið í samræmi við reglugerð Félags- og tryggingamálaráðuneytis frá 9. janúar 2009 um „…reglugerð um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og …

Tónleikar í Reykholtskirkju – breyting

Norsk og íslensk tónlist hljómar í Reykholtskirkju á Hvítasunnu Hátíðakór frá Hálogalandi í Noregi og Háskólakórinn munu halda sameiginlega tónleika í Reykholtskirkju 1. júní, annan í Hvítasunnu kl. 17.00 Athugið að áður auglýst þátttaka Kammerkórs Akraness fellur niður af óviðráðanlegum orsökum   Kirkjukórasamband Suður – Hálogalands í Noregi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var stofnaður …

Tónleikar á Bifröst

Þær Theodóra Þorsteinsdóttir og Ingibjörg Þorsteinsdóttir koma fram á háskólatónleikum í Hriflu miðvikudaginn 27. maí næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. 00 og eru öllum opnir. Aðgangur er ókeypis.   Theodóra Þorsteinsdóttir sópransöngkona er Borgnesingur. Hún stundaði nám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar á yngri árum. Theodóra stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík, lengst af hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, en einnig hjá Önnu …

Viðurkenningar körfuknattleiksdeildar Skallagríms

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Skallagríms veitti á dögunum viðurkenningar til leikmanna í mfl. karla og kvenna fyrir tímabilið 2008-2009. Viðurkenningar hlutu: Mfl. Karla: Mestu framfarir – Arnar Hrafn Snorrason Mikilvægasti leikmaður – Siguður Þórarinsson. Besti leikmaður – Sveinn Arnar Davíðsson Mfl. Kvenna: Mestu framfarir – Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir Mikilvægasti leikmaður – Íris Gunnarsdóttir Besti leikmaður – Rósa Kristín Indriðadóttir   Um síðustu …