Auglýsing um deiliskipulagstillögu Borgarfjarðarbrautar (50) um Reykjadalsá í Borgarbyggð Borgarbyggð auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Borgarfjarðarbrautar um Reykjadalsá sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan tekur til 21,2 ha svæðis í landi Snældubeinsstaða, Grófar og Sturlureykja, og felur í sér að byggð verður tvíbreið brú yfir Reykjadalsá og …
Leikfimihúsið á Hvanneyri 100 ára
Í tilefni aldarafmælis Leikfimihússins á Hvanneyri verður dagskrá í húsinu sunnudaginn 25. september er hefst kl. 15.00. Þar munu nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri sýna skólaíþróttir, og þjóðdansahópurinn Sporið sýna þjóðlega dansa. Hvort tveggja er til þess að minna á mikilvægt hlutverk Leikfimihússins allt frá fyrstu dögum þess. Í frásögn verður stiklað á stóru í aldarsögu Leikfimihússins. Til sýnis verða …
Tveggja Húsfellinga minnst í Safnahúsi
Á þessu ári eru 150 ár liðin frá fæðingu tveggja frændsystkina sem tengjast bænum Húsafelli í Hálsasveit, þeirra Guðrúnar Jónsdóttur vinnukonu þar og Kristleifs Þorsteinssonar bónda og fræðimanns á Stóra Kroppi, en hann var fæddur á Húsafelli. Af þessu tilefni hefur verið sett upp örsýning í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, þar sem ýmislegt sem tengist Guðrúnu og Kristleifi er sýnt …
Stefnumótun í tómstundamálum
Tómstundanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að stefnumótun í tómstundamálum fyrir Borgarbyggð og leggur nefndin mikla áherslu á að fá íbúa til liðs við sig. Tillögur frá íbúafundi 1.september sl. hafa því verið settar í eitt skjal sem er nú birt á heimasíðu Borgarbyggðar; https://borgarbyggd.is/starfsemi/ithrotta-og-aeskulydsmal/stefnumotun/. Tómstundanefndin óskar eftir athugasemdum, tillögum, vangaveltum og hverju því sem fólki kann að detta í hug …
Umhverfisvottað Vesturland – ráðstefna í Hjálmakletti
Hraunfossar_gjFimmtudaginn 22. september standa Framkvæmdaráð Snæfellsness, Náttúrustofa Vesturlands og Borgarbyggð fyrir ráðstefnu um umhverfismál og umhverfisvottanir. Starfsemi sveitarfélaganna á Snæfellsnesi er umhverfisvottuð samkvæmt staðli samtakanna EarthCheck. Í fyrrahaust var samþykkt ályktun á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um að skoða umhverfisvottun fyrir Vesturland allt með Snæfellsnes sem fyrirmynd. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um stöðu umhverfismála og kynna þessa hugmynd. …
Dagur íslenskrar náttúru – 16. september
Hvítá, tekið á Kaldadal_mmDagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn föstudaginn 16. september. Dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar. Felst í þessu viðurkenning á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska náttúru. Sem dæmi um viðburði dagsins má nefna að á …
Borgfirðingabók komin út
Út er kominn 12.árgangur Borgfriðingabókar sem er ársrit Sögufélags Borgarfjarðar en bókin hefur komið út samfellt síðan 2004 en á árunum 1981-1984 komu út 4. árgangar í þremur bindum. Í Ritnefnd bókarinnar sátu Snorri Þorsteinsson formaður, Ásdís Helga Bjarnadóttir og Sævar Ingi Jónsson. Bókin í ár er sú stærsta í blaðsíðum talið sem út hefur komið alls 286 bls. enda …
Sauðamessa 15. október – fréttatilkynning
Fjárfestar athugið!Sauðamessa 2011 í Borgarnesi laugardaginn 15. október. Kjörið tækifæri fyrir Kínverska fjárfesta, sem og alla aðra, að festa sér fé því nóg verður af lausafé að vanda í réttinni rétt við Skallagrímsgarð. Síðan má benda á, líkt og margir góðir handverksmenn þekkja, að úr sauðavölum, t.d. má gera hina glæsilegustu skartgripi, meðal annars fjárfestar. Slíkar festar verða án efa …
Nýtt aðalskipulag komið á heimasíðuna
Svandís staðfestir aðalskipulagið Þann 29. júní sl. staðfesti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra nýtt aðalskipulag fyrir Borgarbyggð 2010-2022 og hefur það tekið gildi. Fyrirtækið Landlínur í Borgarnesi sá um gerð aðalskipulagsins í samvinnu við starfsfólk sveitarfélagsins. Aðalskipulagið má nálgast hér og undir linknum Aðalskipulag Borgarbyggðar hér til hliðar.
Matráð vantar í Andabæ
Matráð vantar í leikskólann Andabæ, tímabundið vegna forfalla. Um er að ræða 100% starf með vinnutímann 8-16. Andabær er leikskóli á heilsubraut og leggjum við áherslu á að bjóða upp á hollan mat unninn frá grunni í leikskólanum. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun …