Börnin á leikskólanum Hnoðrabóli lögðu land undir fót á öskudaginn og skruppu í Reykholt að heimsækja vinnustaði og gleðja fólk með söng og spjalli. Nær væri kannski að segja að þau hefðu lagt land undir dekk því krakkarnir leigðu sér bíl til fararinnar og notuðu til þess ágóða af sölu matreiðsluheftis sem þau gáfu út. Í ferðinni heimsóttu þau N1, …
Bjarki íþróttamaður Borgarbyggðar 2012
Bjarki PéturssonBjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness var valinn íþróttamaður Borgarbyggðar 2012 um síðustu helgi. Að valinu stendur tómstundanefnd Borgarbyggðar en íþróttafélög í sveitarfélaginu senda inn tilnefningar. Bjarki náði á síðasta ári frábærum árangri í sinni íþrótt, keppti fyrir Íslands hönd á mótum erlendis og náði 3. sæti á Evrópumóti unglinga undir 18 ára sem haldi var í Sofíu í Búlgaríu. …
Vilborg Arna í Hjálmakletti á sunnudaginn
Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir heimsækir Borgarnes sunnudaginn 17. febrúar næstkomandi. Vilborg Arna vann einstakt afrek og sýndi mikla þrautseigju þegar hún gekk ein síns liðs á suðurpólinn til styrktar Lífi, Styrktarfélagi Kvennadeildar Landsspítalans. Gangan tók 60 daga en Vilborg hóf gönguna þann 19. nóvember síðastliðinn og lauk henni 17. janúar. Rótarýklúbbur Borgarness, í samstarfi við Borgarbyggð, stendur að skipulagi heimsóknar …
Fjárhagsáætlun 2013
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar má lesa hér.
Ánægjuvogin – styrkur íþrótta
Í kvöld, mánudaginn 11. febrúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi í Hjálmakletti og hefst fundurinn klukkan 20.00. Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort íþróttahreyfingin standist áskoranir nútímasamfélags eða hvort eingöngu sé þjálfað til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður Ánægjuvogarinnar en Ánægjuvogin er könnun sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og …
„Það sást tófa“ – fyrirlestur í Snorrastofu
„Það sást tófa“ er heiti á forvitnilegum fyrirlestri Snorra Jóhannessonar bónda á Augastöðum um íslenska refinn, veiðar á honum og samskipti manns og tófu. Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestraraðarinnar, Fyrirlestrar í héraði, sem Snorrastofa í Reykholti stendur að og verður hann fluttur þar þriðjudaginn 12. febrúar næstkomandi kl. 20.30. Að sögn Snorra er heiti fyrirlestursins sótt í minningu hans …
Ungbarnasund í Borgarnesi
Boðið verður upp á ungbarnasund í sundlauginni í Borgarnesi í febrúar, mars og apríl. Sjá auglýsingu hér.
Hundur í óskilum – Border Collie
Svartur og hvítur Border Collie hundur sem handsamaður var við Svignaskarð er í vörslu Borgarbyggðar. Telji sig einhver eiga hundinnn er viðkomandi vinsamlegast beðinn að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100. Eftir lokun skiptiborð má hafa samband í síma 868-0907.
Kynningarfundur um nýja fjallskilasamþykkt fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp og Borgarbyggð
Fulltrúar nefndar um nýja fjallskilasamþykkt fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp og Borgarbyggð boða til opins kynningarfundar þar sem kynnt verða drög að nýrri sameiginlegri fjallskilasamþykkt fyrir þessi fjögur sveitarfélög. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Valfelli, sem er norðan við Borgarnes, þann 12. febrúar og hefst kl. 20:30.
Heimilishjálp – afleysingar
Starfsmann vantar í tímabundið, frá 20. febrúar til 20. mars, í heimilishjálp hjá Borgarbyggð. Um 90% starf er að ræða og möguleiki á áframhaldandi minni afleysingum. Laun skv. kjarasamningi á bilinu frá kr. 218.000 – 230.000. Upplýsingar veita Hjördís Hjartardóttir í síma 433 7100 eða Elín Valgarðsdóttir í síma 437 2215/840 1525.