Aðalmeðferð hjá Óbyggðanefnd hvað varðar mál nr. 5 á svæði 8 vestur, þ.e. Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, fer fram á Hótel Hamri í Borgarnesi þriðjudaginn 25. nóvember og hefst kl. 9,00. Mál 5 sem nú er til umfjöllunar nær yfir fyrrum upprekstrarlönd Andakílshrepps og Lundarreykjadalshrepps, nú lönd Sjálfseignarstofnunarinnar Ok. Þinghaldið er öllum opið.
Breytingar á lögheimili – tilkynna eigi síðar en 11. desember!
Vakin er athygli á að tilkynningar um breytingar á lögheimili þurfa að berast eigi síðar en fimmtudaginn 11. desember svo unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað við 1. desember þessa árs. Sérstök athygli er vakin á því að einstaklingar geta tilkynnt flutning á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is. Ef lögheimilisflutningur er tilkynntur rafrænt þá fer …
Safnahús – málverkasýning Birnu Þorsteinsdóttur
Málverkasýning Birnu Þorsteinsdóttur, „Sýn“, verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar laugardaginn 22. nóvember kl. 14.00. Birna Þorsteinsdóttir er tónlistarkennari og starfar við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún lærði við Myndlistarskóla Reykjavíkur um tíma, ásamt því að sækja myndlistarnámskeið. Birna var meðal stofnenda Myndlistarfélags Borgarfjarðar á sínum tíma og tók í þátt í nokkrum samsýningum á Vesturlandi í faramhaldi af því en þetta er …
Sagnakvöld í Safnahúsi á fimmtudag
Fimmtudagskvöldið 20. nóvember verður sagnakvöld í Safnahúsi Borgarfjarðar. Þar hafa á undanförnum árum verið haldin sagnakvöld í byrjun vetrar og hafa þau verið ákaflega vel sótt. Á fimmtudagskvöldið verða bækur fimm höfunda kynntar: Guðni Líndal Benediktsson segir frá bók sinn Ótrúlegt ævintýri afa – leitin að Blóðey en bókin hlaut Íslensku barnabókmenntaverðlaunin í ár. Dr. Guðmundur Eggertsson prófessor fjallar um …
Hunda- og kattahreinsun 2014
Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð dagana 24., 25., 26. og 27. nóvember og 1. og 2. desember. Sjá hér auglýsingu.
Opið hús á Bjarnarbrautinni
Fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi kl. 15.00 – 18.00, verða fyrirtæki og stofnanir sem staðsett eru að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi með opið hús. Gestum og gangandi er boðið að koma og þiggja léttar veitingar og fræðast um starfsemi fyrirtækja og stofnana sem í húsinu eru. Sjá nánar hér.
Lokaskýrslur til Menningarsjóðs Borgarbyggðar
Í mars síðastliðnum veitti Menningarsjóður Borgarbyggðar styrki fyrir árið 2014 til menningarverkefna í Borgarbyggð. Samkvæmt reglum sjóðsins ber styrkhöfum að skila inn skýrslu um verkefni sín fyrir árslok. Þeir styrkhafar sem ekki hafa sent inn eru minntir á að senda skýrslur sínar til Emblu Guðmundsdóttur þjónustufulltrúa, skrifstofu Borgarbyggðar, 320 Reykholt eða á netfangið embla@borgarbyggd.is
Heimsóttu Votlendissetrið
Í síðustu viku komu 27 nemendur Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar í heimsókn í Votlendissetur LbhÍ við Vatnshamravatn. Markmið heimsóknarinnar var að fræðast um starfsemi setursins, en jafnframt að fá fræðslu um þá fugla sem sjást á vatninu. Nemendurnir sýndu sérstakan áhuga nokkrum uppstoppuðum fuglum sem hægt var að …
Þjónusta við eldri borgara og fatlaða – eitt númer 433 7100
Eitt þjónustunúmer 433 7100 ! Borgarbyggð hefur tekið upp eitt þjónustunúmer, 433 7100, vegna þjónustu við aldraða og fatlaða. Þar er tekið við öllum erindum er varða heimilishjálp, innlit, stuðning við fatlaða, matarbakka, ferðaþjónustu og alla aðra þjónustuog og erindum síðan beint áfram til starfsmanna sem með gleði reyna að leysa úr öllum málum.
Vinnusmiðja um gerð styrkumsókna
Viltu auka líkur þínar á að fá styrk úr innlendum sjóðum? Vinnusmiðja um gerð styrkumsókna verður í húsnæði Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi 20. nóvember kl. 13.00-16.00. Farið verður yfir undirstöðuatriði í gerð umsókna um styrki í innlenda sjóði. Leiðbeinandi er Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Sjá auglýsingu hér.