Vegna þungatakmarkana á vegum í Borgarbyggð verða enn meiri tafir á losun sorps í dreifbýli. Fólk er beðið um að sýna þessu skilning og beðist er velvirðingar á töfum sem orðið hafa undanfarið. Af ýmsum ástæðum hefur dregist að klára söfnun á rúlluplasti en vonast er til að það takist fyrir lok þessarar viku eða í byrjun næstu ef bílarnir …
Auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsa eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands í eftirfarandi verkefni: 1. Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar 2. Verkefnastyrkir á sviði menningar 3. Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála Styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands koma í stað styrkveitinga úr sjóðum menningar- og vaxtarsamninga. Frestur til að skila umsóknum er til 22. apríl 2015. Nánari upplýsingar um sjóðinn …
Fundur hjá Snillingaforeldrum í kvöld
Í kvöld, Þriðjudaginn 14. apríl 2015 verður fundur hjá snillingaforeldrum í sal Ráðhúss Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 og hefst hann kl. 20.15. Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur, sem hefur unnið mikið með ADHD samtökunum, verður með fræðslu um netnotkun með sérstaka áherslu á svokallaða „netfíkn“. Rannsóknir benda til að sirka 12% reglulegra netnotenda eigi á hættu að ánetjast notkun sinni. Börn …
Nýr innheimtufulltrúi hjá Borgarbyggð
Ráðinn hefur verið nýr innheimtufulltrúi til starfa hjá Borgarbyggð, Helga Margrét Friðriksdóttir. Helga hefur lokið BA námi frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur góða reynslu af innheimtu- og þjónustustörfum. Hún hefur meðal annars unnið sem fyrirtækjafulltrúi hjá Vodafone. Þá hefur hún einnig unnið við ýmis verslunar- og þjónustustörf og tekið fjölbreytt námskeið sem snúa að samskiptum og þjónustu við viðskiptavini. …
Vinnuskóli Borgarbyggðar – sumarstörf 2015
Vinnuskóli Borgarbyggðar auglýsir laus störf fyrir sumarið 2015 Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10 bekk. Vinnutímabil skólans er frá 8. júní – 10. júlí Vinnutími er frá 9:00 – 16:00 alla virka daga nema á föstudögum þá er unnið til 12:00. Allir sem sækja um vinnu þurfa að kynna sér reglur vinnuskólans. Þær má nálgast hér. Umsækjendur …
Altari frá Hjörsey
Byggðasafni Borgarbyggðar barst merkur gripur á dögunum, gamalt altari frá Hjörsey á Mýrum. Því fylgdi sú saga að það væri ekki úr síðustu kirkju þar heldur enn eldri kirkju. Því má gera því skóna að það sé að minnsta kosti 150 ára gamalt. Kirkja var aflögð í Hjörsey árið 1896. Hún tilheyrði Hítarnesþingum en kirkjur þar voru þá þrjár, á …
Umfjöllun um skólahreysti – leiðrétting
Í nýútkomnu fréttabréfi Borgarbyggðar er grein um gott gengi Grunnskólans í Borgarnesi í undankeppni skólahreysti. Þar kemur fram að lið skólans náði 3. sæti, það sé besti árangur skólans í keppninni og fyrsta skipti sem lið skólans stendur á verðlaunapalli. Þetta er ekki alveg rétt því Grunnskólinn í Borgarnesi hefur einu sinni áður verið í 3. sæti. Það var árið …
Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi 2015
Grunnskólinn í Borgarnesi leitar að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015. Deildarstjóri unglingastigs Menntun, reynsla og hæfni: • Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla. • Meistarapróf eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi. • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar. • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur. • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar. • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af …
Sundlaugar í Bogarbyggð – opnunartími um páska
Sundlaugin í Borgarnesi verður opin á skírdag, laugardag fyrir páska og annan í páskum. Lokað verður á föstudaginn langa og páskadag: 2. apríl, skírdagur, opið frá kl. 9.00 – 18.00 3. apríl, föstudagurinn langi, lokað 4. apríl, laugardagur, opið frá kl. 9.00 – 18.00 5. apríl, páskadagur, lokað 6. apríl, annar í páskum, opið frá kl. 9.00 …
Talmeinafræðingur óskast til starfa
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf talmeinafræðings. Starfshlutfall er 60% og brýnt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni eru greining og meðferð talmeina sem og ráðgjöf til foreldra og kennara um talmeinamál. Viðkomandi skal vera áreiðanlegur, lipur í samskiptum og sýna sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð. Gerð er krafa um próf í talmeinafræðum frá Háskóla …