Gunnar Sigurgeir Ragnarsson hefur verið ráðinn sem skipulags- og byggingarfulltrúi Borgarbyggðar. Gunnar er byggingarfræðingur BSc frá Vitusbering Horsens í Danmöku og með sveinsprófi í húsasmíði frá Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hann hefur starfað innan byggingariðnaðarins í um 25 ár og sem skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar sl ár. Alls bárust 4 umsóknir um starfið. Aðrir umsækendur voru: Berglind Ragnarsdóttir, Myrra Ösp Gísladóttir og …
Kjörskrá vegna forsetakosninga
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna forsetakosninga sem fram fara laugardaginn 25. júní 2016 liggur frammi á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, á afgreiðslutíma, frá og með 15. júní til kjördags. Sveitarstjóri
Vegna lúpínuátaks á Búðarkletti
Af gefnu tilefni er áréttað að Borgarbyggð hefur ekki skipulagt herferð gegn útbreiðslu lúpínu í landi sveitarfélagsins. Lúpínuátak sem auglýst er á Búðarkletti miðvikudaginn 15. júní einskorðast við Búðarklett og er því einungis um örlítið brot af þeirri lúpínu sem náð hefur fótfestu í bæjarlandinu að ræða. Þegar sótt var um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna Söguhringsins í Borgarnesi, var …
Líkan af Borgarbraut 57-59
Nú er til sýnis líkan af svæðinu í kring um Borgarbraut 57 og 59. Áhugasamir eru velkomnir í Ráðhús Borgarbyggðar á opnunartíma (9:30 – 12 og 12:30 – 15) til að skoða líkanið.
Tilkynning frá RARIK – straumleysi
Snæfellsnes, Eyja-, Miklaholts-, og Kolbeinstaðahreppur – straumleysi Raforkunotendur á Staðarsveitar-, og Laugagerðislínu, rafmagnslaust verður aðfaranótt föstudagsins 10. júní frá miðnætti til kl. 07:00 vegna vinnu á 66 kV flutningslínu Landsnets. Búast má við rafmagnstruflunum á norðanverðu Snæfellsnesi á saman tíma. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa.
Skýrsla um hljóðmælingar
Skýrsla um hljóðmælingar vegna Skotæfingasvæðis og Mótorkrossbrautar er nú komin sem fylgiskjal í fundargerð 35. fundar Umhverfis – skipulags – og landbúnaðarnefndar. Einnig má skoða hana hérna- [skýrsla hljóðpróf]. Eins er búið að birta drög að deiliskipulagi skotæfingasvæðis í fundargerðinni og má skoða það hérna einnig.[ drög deilisk skotæfingasvæði ]
Steini Eyþórs hjólar hringveginn og safnar fyrir ADHD
Af vef Skessuhorns. Þorsteinn Eyþórsson, 62 ára Borgnesingur, leggur af stað hjólandi hringveginn í dag, miðvikudaginn 8. júní. „Ég ætla ekki að vera með neinn æsing og stefni á að taka 16 daga í þetta,“ segir Steini þegar Skessuhorn hafði samband við hann. „Það eru svona að meðaltali um 85 kílómetrar á dag,“ bætir hann við. Steini byrjaði að hjóla …
Sveitarstjórnarfundur nr. 142
SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 09. júní 2016 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra Fundargerð sveitarstjórnar 12.5. (141) Fundargerðir byggðarráðs 18.5, 26.5., 2.6. (376, 377, 378) Fundargerðir umhverfis – skipul. og landb.n. 06.06. (35) Fundargerð fræðslunefndar 31.5. (142) Velferðarnefnd 5., 2.6. (61, …
Straumleysi norðan Skarðheiðar – Borgarfjörður, Mýrasýsla 7. júní nk
Vegna vinnu Landsnets á Vatnshömrum þarf að taka rafmagn af dreifikerfi RARIK norðan Skarðsheiðar aðfaranótt 7. júní frá miðnætti til kl. 07:00 Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með talið alla þéttbýlisstaði, s.s. Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri. Búið er að setja tilkynningu inn á heimasíðu RARIK um fyrirhugað straumleysi. Þá hefur straumleysið einnig …