Vegna framkvæmda við Borgarbraut 57-59 verður Kveldúlfsgata lokuð við gatnamót Borgarbrautar tímabundið eða frá og með í dag og fram eftir degi á morgun Hjáleið verður um Þorsteinsgötu/Kjartansgötu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin hefur fyrir vegfarendur. Umhverfis – og skipulagssvið Borgarbyggðar
Andabær – skóli á grænni grein
Andabær fékk afhentan Grænfánann í 7. sinn mánudaginn 4 desember. Leikskólinn er því skóli á grænni grein. Haustið 2004 ákvað starfsfólk Andabæjar að ganga í það verkefni að gera skólann að „Skóla á grænni grein.“ Starfsfólk leikskólans var duglegt að koma með hugmyndir að markmiðum til að vinna að ásamt því sem börnin tóku virkan þátt í samverustundum og hópastarfi. Þann 25. maí …
Nýr sviðsstjóri umhverfis – og skipulagssviðs Borgarbyggðar
Starf sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar var auglýst laust til umsóknar á dögunum. Tíu umsóknir bárust um starfið og þökkum við öllum umsækjendum fyrir sýndan áhuga á starfinu. Umsækjendur voru: Anna Gréta Ólafsdóttir, MA í menningarstjórnun Áki Ármann Jónsson, B.Sc í líffræði Ásta Soffía Valdimarsdóttir, Ph. D Jón Tryggvi Sveinsson, BA í Bókasafns- og upplýsingafræði Kristjana Hera Maack Sigurjónsdóttir, MA …
Ísland ljóstengt
Ísland ljóstengt – úthlutun styrkja S.l. fimmtudag úthlutaði Fjarskiptasjóður styrkjum til sveitarfélaga vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga, Ísland ljóstengt. Borgarbyggð fékk úthlutað 33.151.000.- kr. til að tengja 66 tengipunkta (notendur). Á fjárhagsáætlun eru síðan 100.000.000.- kr. þannig að ljóst er að mikið verður hægt að framkvæma á næsta ári, bæði tengja notendur sem styrkur hefur fengist til og undirbúa jarðveginn fyrir tengingar …
Saga Borgarness
Borgarbyggð vill minna á ósóttar pantanir af Sögu Borgarness. Bækurnar eru til afgreiðslu í ráðhúsinu í Borgarnesi og hjá Bókaútgáfunni Opnu í Skipholti 50b í Reykjavík. Einnig er hægt að fá bókina senda. Þeir sem ekki hafa tök á að koma á opnunartíma vinsamlega hafið samband í síma 433 7100 eða sendið póst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Æskulýðsball í Hjálmakletti
Hið árlega Æskulýðsball var haldið 9.nóvember sl. í Hjálmakletti. Félagsmiðstöðin Óðal stendur fyrir ballinu sem er fyrir öll ungmenni í 8.-10. bekk á Vesturlandi. Þátttakan er ávallt góð en um 350 ungmenni komu frá Vesturlandi í Borgarnes og skemmtu sér saman. Æskulýðsballið fór mjög vel fram og voru unglingarnir alveg til fyrirmyndar. Unglingarnir í Félagsmiðstöðinni Óðal sáu um undirbúning og …
Móglí í Borgarnesi
Söngleikurinn Móglí var frumsýndur föstudaginn 24. nóvember sl í Hjálmakletti. Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur fyrir sýningunni í tilefni af 50 ár afmæli skólans. Uppselt var á frumsýninguna sem tókst einkar vel. Einnig var fullt hús á sýningunum á laugardag og sunnudag. Þegar er farið að seljast vel á næstu sýningar, en alls verða sýningarnar 10 og lokasýningin verður laugardaginn 9. desember. …
Jólaljósin tendruð í Skallagrímsgarði 3. des.
Upphaf aðventu í Borgarbyggð sunnudaginn 3. desember 2017 Jólaljósin tendruð í Skallagrímsgarði kl. 17.00 Ljósin verða tendruð á jólatré Borgarbyggðar í Skallagrímsgarði. Þar mun Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri flytja ávarp og tendra jólaljósin. Jólalög verða sungin af Barnakór Borgarness undir stjórn Steinunnar Árnadóttur við undirleik Halldórs Hólm. Einnig mun Andrea Jónsdóttir spila á saxafón. Nemendur Grunnskólans í Borgarnesi bjóða …
Efni til endurvinnslu
Grunnskólinn í Borgarnesi tekur þátt í Grænfánaverkefninu sem stuðlar að aukinni umhverfisvitund. Í umhverfissáttmála skólans kemur meðal annars fram að endurnýta og endurvinna skuli það sem hægt er. Áhugi er fyrir því innan skólans að nota endurunnið efni og annað sem til fellur með litlum kostnaði við jólaföndur í skólanum. Af þessu tilefni er nú boðið upp á afskrifaðar bækur, birkikubba og köngla á …
Fyrirmyndardagurinn
Ráðhús Borgarbyggðar tók þátt í fyrirmyndardeginum föstudaginn 24. nóvember sl. Vinnumálastofnun stendur að fyrirmyndardeginum en þá bjóða fyrirtæki og stofnanir atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að fylgja starfsmanni eftir í sínu fyrirtæki eða stofnun í einn dag eða hluta úr degi. Með því fá atvinnuleitendur tækifæri á að kynna sér fjölbreytt starfsumhverfi og forsvarsmenn fyrirtækja fá að kynnast styrkleikum hvers þátttakanda.