Leikskólinn Andabær, Hvanneyri
Leikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100% stöðu á elstu deild leikskólans.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum.
Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara:
Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn leikskólastjóra.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti
- Góð íslenskukunnátta
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Miðað er við ráðningar í stöðuna sem fyrst. Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið verður leiðbeinandi ráðinn.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2018
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 4337170
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is