Mikið líf í Safnahúsi

Mjög góð aðsókn hefur verið að Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi í sumar og í ágústmánuði einum komu um 1400 gestir. Alls komu um 8000 manns í húsið fyrstu átta mánuði ársins sem er um 20 % aukning frá því í fyrra. Þessa dagana vekur mikla athygli sýning ungs listamanns sem ættaður er úr Borgarnesi, Matthíasar Margrétarsonar. Matthías hefur þegar stundað …

Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir LbhÍ

Í síðustu voru undirritaðir samningar um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Úthlutunarnefnd ákvað að undangengnu mati sérfræðinga að styrkja þrjú verkefni en að þessu sinni bárust sjö umsóknir. Eitt þessara verkefna er á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands, en LbhÍ hlaut styrk til að vinna að tveggja ára verkefni með sauðfjárbændum í fimm Evrópulöndum. Sauðfjárbændum og öðrum þeim sem vinna …

Styrktarsýning á Brák

  Fimmtudagskvöldið 24. október verður sérstök styrktarsýning í Landnámssetrinu á leikritinu Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur. Allur ágóði af sýningunni rennur til endurhæfingardeildar Grensásspítala og enn eru til lausir miðar. Brák er einleikur í fullri lengd eftir Brynhildi Guðjónsdóttur. Verkið er sérstaklega samið fyrir Söguleikhúsið til sýninga á Söguloftinu á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Leikritið er saga Þorgerðar Brákar, fóstru Egils Skallagrímssonar …

Örnefni og örnefnasöfnun á Vesturlandi

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, félag eldri borgara í Borgarfjarðardölum, félag eldri borgara í Snæfellsbæ og Menningarráð Vesturlands gangast fyrir fundum um örnefni og örnefnaskráningu. Fundirnir verða haldnir miðvikudaginn 30. september, kl 13.00 í Reykholti, og kl 20.00 í Átthagastofu í Ólafsvík. Sjá nánar á heimasíðu Menningarráðs Vesturlands www.menningarviti.is    

Ráðstefna um Kirkjur Íslands

Í tilefni af útkomu tveggja nýrra binda af Kirkjum Íslands verður haldin ráðstefna í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands fimmtudaginn 24. september kl. 13.15-15.00. Flutt verða sjö stutt erindi. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt lýsir markmiðum útgáfunnar og umfjöllunarefni, Jón Torfason skjalavörður segir frá heimildum um kirkjur og kirkjugripi á Þjóðskjalasafni Íslands, Björk Ingimundardóttir skjalavörður flytur óformlegt spjall um Borgarfjörð og Borgfirðinga, Sigríður Björk …

Félagsmiðstöðin Gaukurinn Bifröst

Félagsmiðstöðvarstarf í Gauknum Bifröst hefst fimmtudaginn 17. sept. kl. 20:00. Starfið er ætlað öllum unglingum í Varmalandsskóla í 7. – 10. bekk.     Opið hús í fyrsta skipti í vetur en opið verður á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 – 22.00 ef þátttaka er næg. Gamlir Gossip Girl þættir látnir ganga allt kvöldið.     Allir að mæta með hugmyndir …

Tónleikar í Landnámssetri

Í kvöld fimmtudaginn 17. september flytja Kristjana Arngrímsdóttir, söngkona, og Kristján Hjartarson gítarleikari ljúfa tónlist í Landnámssetri. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Þau hjónin Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson hafa um langan tíma tekið þátt í tónlistarlífi í sinni heimabyggð, Svarfaðardal og Dalvík. Kristján tileinkaði sér snemma vísnasöng að skandinavískri fyrirmynd og kom fram sem trúbador víða um land. Kristjana fór …

Rómantík og revíur í Reykholtskirkju

Hanna Dóra Sturludóttir söngkona og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari halda tónleika þar sem þær flytja m.a. lög og ljóð eftir Vestlendinga. Í tengslum við tónleikana verður sýning á kjólum sem Þrúður Kristjánsdóttir hefur hannað og saumað handa Hönnu Dóru, Sýningin er opin í anddyri kirkjunnar frá kl. 18-20 sama dag og tónleikarnir.  

Réttað í Grímsstaðarétt

Réttað var í Grímsstaðarétt í gær í rigningu og bleytu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Ingibjörg Hargrave tók af Sigurjóni á Valbjarnarvöllum, fyrrum dreifbýlisfulltrúa Borgarbyggðar, á spjalli við Ásgerði á Arnarstapa. Ásgerður er réttarstjóri í Grímsstaðarétt og hlýðir hér á góð ráð eða litla skemmtisögu frá Sigurjóni. Í dag er réttað í Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal.  

Frá Grunnskólum Borgarbyggðar

Vegna sameiginlegs fundar allra kennara í Grunnskólum Borgarbyggðar verður kennslu í Grunnskólanum í Borgarnesi hætt kl. 12.30 á morgun, fimmtudaginn 17. september. Heimferð frá Laugargerðisskóla verður kl. 12.25, Varmalandsskóla kl. 12.30 og heimferð frá Kleppjárnsreykjaskóla og Hvanneyri kl. 13.00. Tómstundaskólinn í Borgarnesi opnar kl. 12.40, strax að skóladegi loknum og skólaselin á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri verða opin frá kl. 13.00 …