Til hamingju Gísli!

Gísli tekur við blómum frá sveitarstjórnÍ tilefni tvennra Edduverðlauna Gísla Einarssonar fréttamanns, heimsóttu Páll Brynjarsson sveitarstjóri og Ragnar Frank Kristjánsson forseti sveitarstjórnar, Gísla á skrifstofu RÚV í Borgarnesi í gær og færðu honum blómvönd frá sveitarstjórn. Eins og kunnugt er var Gísli valinn sjónvarpsmaður ársins og Landinn, sem Gísli ritstýrir, var valinn frétta- og mannlífsþáttur ársins. Gísli er vel að …

Málþing um atvinnumál

Laugardaginn 26. febrúar næstkomandi mun Borgarbyggð standa fyrir málþingi í Reykholti um atvinnumál. Þingið hefst kl.13.00 og mun standa til 16.30. Ýmsir góðir gestir munu flytja erindi, en erindin eiga það felst sameiginlegt að fjalla um atvinnuuppbyggingu í Borgarfjarðardölum og uppbyggingu í sátt við umhverfið. Dagskrá þingsins má sjá hér og allir áhugasamir um atvinnumál í Borgarbyggð eru hvattir að …

Nemendur á Hvanneyri styðja Pálfríði

Um árabil hafa nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri hannað og selt jólakort til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni ákváðu þeir að verja ágóða af jólakortasölunni til þess að styðja við bakið á Pálfríði Sigurðardóttur frá Stafholtsey. Pálfríður gekkst undir erfiða hjartaaðgerð í Svíþjóð á dögunum en sonur hennar er nemandi í Grunnskóla Borgarfjarðar.www.gbf.is   Nemendur söfnuðu alls 55 þúsund …

Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka 2011

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2011. Umsóknarfrestur er til 10. maí 2011 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra. Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi …

Ingunn ráðin forstöðumaður íþróttamannvirkja

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar s.l. fimmtudag var samþykkt að ráða Ingunni Jóhannesdóttir í starf forstöðumanns íþróttamannvirkja. Ingunn var valin úr hópi 13 umsækjenda, en hún er leikskólakennari að mennt og hefur starfað í rúm 20 ár við leikskóla sveitarfélagsins síðast sem leikskólastjóri á Varmalandi.    

Álagning fasteignagjalda

Lokið er vinnu við álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð 2011 og hafa álagningarseðlar verið sendir til gjaldenda. Gjalddagar eru átta, þ.e. 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september en eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef heildarfjárhæð er undir 15.000 krónum er einn gjalddagi og er hann 15. maí. Vakin er …

Menningarsjóður Borgarbyggðar 2011-02-14

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins. Umsóknir skulu berast …

Hlutastarf á leikskólanum Andabæ

Leikskólinn Andabær á Hvanneyri auglýsir eftir starfskrafti tímabundið vegna forfalla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um 50% starfshlutfall er að ræða. Nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir, leikskólastjóri í síma 4370120 eða á netfangið andabaer@borgarbyggd.is.    

112 dagurinn í Borgarnesi – 2011

Næstkomandi föstudag 11. febrúar verður 112 dagurinn haldinn um land allt. Viðbragðsaðilar í Borgarfirði ætla að taka höndum saman og sýna bíla, tæki og fleira skemmtilegt á planinu við Hjálmaklett í Borgarnesi, frá kl. 14.00 á föstudag. Björgunarsveitir verða með leitarhesta, bíla og fleiri tæki sem þær og nota við sín störf. Sjúkrabíllinn verður einnig á staðnum og þeir sem …

Niðurstaða samvinnunefndar um niðurfellingu á svæðisskipulagi Mýrasýslu 1998-2010

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 samþykkti þann 28. janúar 2011 að fella Svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 úr gildi. Ástæða niðurfellingarinnar er sú að sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að fella úr gildi svæðisskipulagið vegna nýs aðalskipulags Borgarbyggðar 2010 – 2022. Tillaga að niðurfellingu svæðisskipulagsins var auglýst og lá frammi til kynningar á skrifstofu sveitarfélagsins Borgarbraut 14 Borgarnesi, á heimasíðu sveitarfélagsins og á …