Útnefningu íþróttamanns ársins frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður útnefningu íþróttamanns ársins hjá Borgarbyggð, sem fara átti fram sunnudaginn 5. febrúar, frestað.   Ný tímasetning verður kynnt á allra næstu dögum.   Tómstundanefnd Borgarbyggðar      

Skák og mát í sundlauginni

Í síðustu viku, fimmtudaginn 26. janúar var skákdagurinn á Íslandi og teflt var um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara. Í tilefni dagsins var sundlaugin í Borgarnesi skákvædd þegar Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jóhann Óli Eiðsson afhendu Páli Brynjarssyni sveitarstjóra tafl frá Skákakademíunni. Tinna og Jóhann Óli vígðu taflið í heita pottinum að viðstöddum Helga Ólafssyni stórmeistara. Helgi tefldi …

Bækur Guðmundar Hjartarsonar

Nýverið barst Héraðsbókasafni Borgarfjarðar myndarleg gjöf. Um er að ræða bækur úr eigu Guðmundar Hjartarsonar fyrrverandi seðlabankastjóra, en hann lést fyrir nokkrum árum og ánafnaði Safnahúsi bókasafni sínu. Þar er margt góðra bóka og er gjöfin því talsverður styrkur fyrir héraðsbókasafnið. Guðmundur var fæddur á Litla-fjalli í Borgarhreppi en fór til Reykjavíkur 25 ára gamall og bjó þar eftir það. …

Þulur – samstarfsverkefni Tónlistarskóla og Safnahúss

Safnahús og Tónlistarskóli Borgarfjarðar hafa tekið saman höndum um tilraunaverkefni til að vekja athygli á þuluforminu og hvetja til sköpunar á grundvelli þess. Verkefnið er unnið með aðstoð Árnastofnunar sem leggur til upptökur af eldri þulum sem varðveist hafa í munnlegri geymd, kveðnar af borgfirskum konum. Um leið er skáldkonunnar Guðrúnar Jóhannsdóttur frá Sveinatungu minnst með því að úrval af …

Söngkeppnin fer í Óðal

Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Vesturlandi verður ekki haldin í Hjálmakletti eins og auglýst var. Keppnin hefur verið færð yfir í félagsmiðstöðina Óðal og hefst þar kl. 19.00 í kvöld.  

Skákdagurinn á Íslandi

Fimmtudaginn 26. janúar er skákdagurinn á Íslandi. Stefnt er að því að fá sem flesta að tafli um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara, en 26. janúar er fæðingardagur hans. Skákfélagar í UMSB hafa fengið stórmeistarann Helga Ólafsson til að koma og tefla fjöltefli í Hyrnutorgi kl 16.00. Vonast er eftir að sem flestir komi og reyni sig við …

Söngkeppni í Hjálmakletti

Söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fer fram í Hjálmakletti fimmtudaginn 26. janúar næstkomandi. Vinningsatriðin taka svo þátt í lokakeppni Samfés sem haldin verður í Laugadalshöllinni þann 3. mars en þrjú atriði frá Vesturlandi og Vestfjörðum geta komist áfram. Keppnin í Hjálmakletti hefst sutndvíslega kl. 19.00. Sjá auglýsingu hér  

Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð

Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2012 og hafa álagningarseðlar verið sendir til gjaldenda.Vakin er athygli á að álagningarseðlarnir verða einnig aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni Island.is Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti var 20. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október. Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga. Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem …

Styrkir vegna íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundamála

Borgarbyggð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála á árinu 2012. Um styrki geta sótt félög og aðrir aðilar sem sinna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi. Umsókn þarf að fylgja yfirlit yfir fjárhagsstöðu ársins 2011, yfirlit yfir fjölda virkra iðkenda og aldursskiptingu þeirra, fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og áætlanir …

Starfsmenntabrautin í Gettu betur í kvöld

Starfsmenntabraut Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri keppir við Fjölbrautarskóla Suðurlands í Gettu betur í kvöld, mánudaginn 23. janúar. Keppni liðanna hefst kl. 19.30 á rás 2.Fyrir hönd Hvanneyringa keppa þeir Sigurður Heiðar Birgisson, Gylfi Sigríðarson og Jón Árni Magnússon. Þjálfari liðsins er Egill Gunnarsson nemi á þriðja ári í búvísindum við Landbúnaðarháskólann.