80 ár frá sjóslysi

Eins og fram hefur komið hér eru um þessar mundir liðin 80 ár frá því að franska rannsóknaskipið Pourquoi pas strandaði við Straumfjörð með þeim afleiðingum að fjörutíu manns létust. Varð þessi hörmulegi atburður mörgum minnisstæður og vakti mikla samúð Íslendinga með frönsku þjóðinni.  Aðeins einn áhafnarmeðlimur komst lífs af, stýrimaðurinn E. Gonidec.  Var honum bjargað af Kristjáni Þórólfssyni, fóstursyni …

Hlutverk foreldra í læsi barna

Hlutverk foreldra í læsi barna  Stutt námskeið fyrir foreldra og kennara  Þriðjudaginn 4. október kl.16.30 – 18.30  Haldið í húsnæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands Farið verður stuttlega yfir einfaldar leiðir til að efla lestraráhuga, lesskilning og lestrarfærni barna á öllum aldri. Sýnd verða myndbönd og gefin dæmi um hvernig setja má upp einfalda leiki sem örva lestur heima. Leiðbeinandi: Ásta Björk Björnsdóttir, …

Forritarar framtíðarinnar í Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóli Borgarfjarðar hefur fengið styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar http://www.forritarar.is/ . Sjóðurinn er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni Skema, RB og aðila atvinnulífsins. Styrkurinn felst í þjálfun á kennurum í forritun á vegum Skema að verðmæti 260.000 kr.  Auk þess fær skólinn afhentar 10 tölvur …

Pourquoi pas?

Í dag eru 80 ár liðin frá því að franska hafrannsóknaskipið Pourquoi pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum. Í tilefni þess standa Franska sendiráðið á Íslandi og Fellowship Dr. Jean Baptiste Carcot og Pourquoi pas? og Háskóli Íslands fyrir þriggja daga dagskrá í minningu þess hörmulega atburðar. Fimmtíu manna hópur kom vestur í Straumfjörð fimmtudaginn 15. September þar sem haldin …

Starfsemi Öldunnar

Starfsemi Öldunnar færðist í nýtt og bjart húsnæði að Brákarbraut 25. Þar er vinnustofa til húsa og dósamóttaka. Á vinnustofunni starfa að meðaltali tíu starfsmenn og tveir leiðbeinendur ásamt forstöðumanni. Í dósamóttökunni starfa sjö starfsmenn og einn verkstjóri. Framkvæmdir við að innrétta húsnæðið eru komnar langt á veg og er ánægja meðal starfsmanna með nýju aðstöðuna. Nú geta starfsmenn Öldunnar …

Frístundastarf skoðað

Starfsfólk frístundastarfs í Borgarbyggð heimsótti frístundaheimili á Seltjarnarnesi og í Fossvogi sl. föstudag. Markmið með heimsókninni var að sjá hvernig önnur sveitarfélög standa að frístundastarfi og deila hugmyndum og reynslu með starfsfélögum. Alls fóru 14 starfsmenn Grunnskólans í Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar í ferðina ásamt fræðslustjóra og tómstundafulltrúa UMSB. Skoðaði hópurinn Skólaskjól í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi sem  er dagvist fyrir …

Leiðtoginn í mér

Námskeið  var haldið fyrir kennara og annað starfsfólk skóla sem er að hefja störf í Borgarbyggð um verkefnið Leiðtoginn í mér. Sóttu tuttugu manns námskeiðið sem fjallaði meðal annars um um sjö venjur til árangurs og mikilvægi þess að setja sér markmið. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri, Kristín Gísladóttir leikskólastjóri og Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri. Í verkefninu Leiðtoginn …

Yoga fyrir eldri borgara og öryrkja

Áfram verða  léttar yogaæfingar í félagsstarfinu í Borgarnesi. Tímarnir verða á fimmtudögum kl. 13:00 – 14:00 í salnum á Borgarbraut 65a. Fyrsti tími í haust verður 15. september nk. Verð kr. 200 fyrir stakan tíma, kr. 700 fyrir mánuðinn eða kr. 1.800 fyrir allt tímabilið ( greiðist hjá Elínu í félagsstarfinu). Yogakennari Erla Kristjánsdóttir.

Tilkynning um straumleysi

Mýrar, Hítardalur, Helluskógur, Stangarholt Rafmagnslaust verður  á morgunn föstudaginn 9.sept kl 13:00 til kl 13:15 vegna vinnu við háspennudreifikerfið. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími 5289390 Bilanavakt Vesturlandi Sími: 528 9390 bilanavakt.vesturlandi@rarik.is

Menningarminjadagur Evrópu 2016

Þann 17. september næstkomandi er menningarminjadagur Evrópu og af því tilefni er Minjastofnun Íslands með atburði í öllum landshlutum.