Nemandi í Hagnýtri aðferðafræði við LBHÍ vann á dögunum verkefni fyrir Borgarbyggð. Um var að ræða könnun meðal íbúa á viðhorfum þeirra til úrgangsmála. Könnunin var símakönnun og úrtakið var 146 manns. Könnun sem þessi gefur vísbendingar um viðhorf íbúa til úrgangsmála og verður hægt að nýta við áframhaldandi þróun þjónustunnar. Nánast allir þátttakendur flokka úrgang eftir bestu getu, í …
Sumarfjör og Vinnuskóli
Í sumar hefur Borgarbyggð staðið fyrir námskeiðum fyrir börn á aldrinum 5 – 13 ára í samstarfi við UMSB. Námskeiðin eru haldin í Borgarnesi og á Hvanneyri. Boðið er uppá keyrslu fyrir börn frá GBF-Varmalandi og frá GBF-Kleppjárnsreykjum. Hefur þátttaka verið góð og börnin skemmt sér vel á námskeiðum um t.d. listir, náttúruna, vísindi, útivist og íþróttir, sjá nánar hér. Um …
Borgarbraut 57 – 59
Þann 26. Júní sl. barst sveitarstjórn Borgarbyggðar bréf frá Nordik lögfræðiþjónustu þar sem sett er fram bótakrafa f.h. Húss og lóða ehf vegna meints tjóns fyrirtækisins vegna seinkunar framkvæmda við Borgarbraut 57-59 í kjölfar þess að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi deiliskipulag og byggingarleyfi vegna Borgarbrautar 57-59 úr gildi. Bótakrafan í þremur liðum og er samtals að fjárhæð kr. 153.365.128.- …
Hreinsun rotþróa
Þessa dagana er unnið að hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu og sér Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands um verkið venju samkvæmt. Til að auðvelda hreinsunina þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi, sjá til þess að hlið séu ólæst svo og merkja staðsetningu rotþróar. Hægt er að sjá nánari upplýsingar m.a. hvenær rotþrær voru síðast tæmdar á Rotþróakorti sem má nálgast hér. …
Vinabæjarmót í Borgarbyggð
Dagana 30. júní til 2. júlí verður haldið vinabæjamót í Borgarbyggð. Sveitarfélagið Borgarbyggð og Borgarfjarðardeild Norræna félagsins hafa haft veg og vanda að undirbúningi mótsins. Tæplega 60 gestir frá vinabæjunum Borgarbyggðar munu taka þátt í mótinu. Vinabæir Borgarbyggðar eru: Ullensaker í Noregi, Falkenberg í Svíþjóð, Odsherred í Danmörku og Eysturkommuna í Færeyjum. Flestir gestanna er á vegum norrænu félaganna en …
Fundir byggðarráðs í júlí
Á fundi sveitarstjórnar þann 8. Júní sl. var ákveðið að sveitarstjórn taki frí frá fundarhöldum til júlíloka. Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn þann 10. ágúst n.k. Því fer byggðarráð með fullnaðarumboð sveitarstjórnar til afgreiðslu mála fram til júlíloka. Byggðarráð fundar sem hér segir á þessum tíma: Fimmtudaginn 6. júlí Fimmtudaginn 20. júlí Ekki verða haldnir fundir hjá byggðarráði þann 29. …
Flokkunarleiðbeiningar á ensku og pólsku
Flokkunarleiðbeiningar fyrir úrgang á ensku og pólsku birtast nú á heimasíðunni. Gott væri ef húseigendur og húsfélög gætu bent leigjendum sínum á þessar upplýsingar, og íbúar hjálpist að við að koma þessum upplýsingum til þeirra sem á þurfa að halda. FLokkunartaflapólska2016 flokkunartaflaenska2016 Flokkunartafla á íslensku
Skógarkerfill
Skógarkerfill er ágeng tegund og mikill vilji er til að hefta útbreiðslu hans í landi sveitarfélagsins. Íbúar eru því hvattir til að ráðast gegn honum í sínu nánasta umhverfi sé þess nokkur kostur. Sjá má nánari upplýsingar og myndir af plöntunni í fyrri frétt um málið (mynd: Erling Ólafsson) https://borgarbyggd.is/frettir-slideshow/skogarkerfill/
Stuðningur v. náttúruhamfara á Grænlandi
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 22. Júní sl. að styrkja söfnunina „Vinátta í verki“ sem hrundið var af stað vegna náttúruhamfaranna á vesturströnd Grænlands sem lögðu þorpið Nuugaatsiaq í rúst, um kr. 100.000.- Það er eðlilegt að leggja nágrönnum okkar í vestri stuðning þegar þeir þurfa á að halda eins og þeir gerðu á sínum tíma þegar vestfirsk …
Klettaborg – úr könnun Skólapúlsins 2017
Helstu niðurstöður úr foreldrakönnun Skólapúlsins vorið 2017 Leikskólar í Borgarbyggð nota kannanakerfið Skólapúlsinn til að fylgjast með og bæta innra starf leikskólanna og var könnun framkvæmd í mars s.l. Í Klettaborg voru niðurstöðurnar afar ánægjulegar en foreldrakönnunin innihélt 31 matsþátt í sex flokkum þar sem hver matsþáttur innihélt eina eða fleiri spurningar, niðurstöðurnar voru svona: Daglegt leikskólastarf Ánægja með leikskólann …