Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026

júlí 17, 2026
Featured image for “Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026”

Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst.

Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is

Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er.
Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar.

Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er því föstudagurinn 17. júlí.
S
krifstofan opnar að nýju 4. ágúst kl. 10.00

ATH: Tilkynningarhnappur barnaverndar er og verður áfram opinn á vefsíðu okkar. Eins verður áfram hægt að senda póst á netfangið barnavernd@borgarbyggd.is


Share: