Mánudaginn 14. júlí sl. voru í Ráðhúsi Borgarbyggðar opnuð tilboð í ýmis verk í Borgarbyggð. Aðeins eitt tilboð barst, frá Borgarverki í Borgarnesi. Niðurstaða tilboðs var eftirfarandi: Gata frá Vesturlandsvegi að hesthúsahverfi – yfirborðsfrágangur: Tilboð verktaka: 10.634.000 kr. Kostnaðaráætlun Borgarbyggðar: 10.390.000 kr. Hrafnaklettur malbikun og gangstéttar, Stekkjarholt malbikun: Tilboð verktaka: 25.783.500 kr. Kostnaðaráætlun Borgarbyggðar: 24.797.500 kr. Malbikaður göngustígur frá Kvíaholti …
Íbúafundur um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu
Íbúafundur um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn miðvikudaginn 13. ágúst í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi og hefst kl. 20,30. Framsögumenn verða: Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri Sigurður M Einarsson stjórnarformaður Páll S Brynjarsson sveitarstjóri Á eftir framsöguerindum verða almennar umræður þar sem stjórnarmenn SPM og fulltrúar í byggðarráði Borgarbyggðar sitja fyrir svörum. Sveitarstjórn Borgarbyggðar
Sauðamessa 2008
Sauðamessa 2008 verður ekki 30. ágúst eins og áður hefur verið auglýst. Samkvæmt tilkynningu frá stjórnendum Sauðamessu hefur hún verði færð til laugardagsins 4. október, þ.e. fyrstu helgi í október en ,,messan“ hefur verið á þeim tíma þau skipti sem hún hefur verið haldin.
Skólafréttir GBF
Fyrsta tölublað nýs skólafréttabréfs hjá Grunnskóla Borgarfjarðar er komið út. Skólafrétttir GBF eins og blaðið heitir, á að koma út í hverjum mánuði eða oftar ef þurfa þykir. Því er ætlað að koma á framfæri fréttum af skólalífinu á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri auk upplýsinga um viðburði og annað sem talið er að eigi erindi við foreldra / forráðamenn og íbúa …
Óvenjuleg sjón við Hvítárbrú
Harla óvenjuleg og sjón blasti við þeim sem voru viðstaddir 80 ára afmælishátíð Hvítárbrúarinnar við Ferjukot í dag, þegar Sæmundur Sigmundsson ók gömlu rútunni sinni (árgangi 1947) af stað yfir brúna. Í kjölfarið fylgdu svo fleiri fornbílar og gangandi fólk, en nokkrum sinnum var farið yfir þessa gömlu fallegu brú í blíðviðrinu. Að lokinni dagskrá þáði fólk veitingar við bæinn …
Opnun Tómstundarskólans í Borgarnesi
Þar sem unnið er við að lagfæra húsnæði Tómstundarskólans í Borgarnesi verður ekki unnt að opna hann fyrr en mánudaginn 18. ágúst og verður hann þá opinn frá kl. 08.00-17.00 fram að skólabyrjun. Þeir sem ætla að nýta sér þessa daga og/eða hafa ekki skráð þau börn sem þurfa pláss næsta vetur vinsamlegast gerið það fyrir 14. ágúst. …
Nýtt Borgarfjarðarkort
Nýtt Borgarfjarðarkort fyrir ferðamenn hefur nú litið dagsins ljós og kom út í 10.000 eintökum. Þetta er í áttunda sinn sem þetta vinsæla ferðakort er gefið út. Fyrst var það unnið á vegum Ferðamálasamtaka Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, en nú af Upplýsinga- og kynningarmiðstöð Vesturlands fyrir atbeina atvinnu- og markaðsnefndar Borgarbyggðar. Í þessari nýju útgáfu er búið að uppfæra ýmsar …
Hátíð á laugardag: Hvítárbrúin og dráttarvélin
Laxveiði- og sögusafnið í Ferjukoti, Vegagerðin og Sæmundur Sigmundsson standa fyrir samkomu við gömlu Hvítárbrúna kl. 16 á laugardaginn kemur, þann 9. ágúst, í tilefni 80 ára vígsluafmælis brúarinnar. Sama dag verður 90 ára innflutningsafmælis dráttarvélarinnar á Íslandi minnst í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og meðal annarra dagskrárliða er samsetning stærstu dráttarvélar landsins. Sjá nánar á www.landbunadarsafn.is Ljósmynd með …
Skóli í smíðum
Byggingu Menntaskóla Borgarfjarðar miðar vel áfram þessa dagana og koparklæðning hússins langt komin. Rétt eftir ásetningu hefur koparinn á sér gullinn blæ en við snertingu við súrefni tekur hann fljótlega sinn rétta lit. Vinna við hátíðarsal hússins gengur einnig vel, og vænta má mikils af honum fyrir borgfirskt menningarlíf ekki síður en fyrir skólann sjálfan. Verið er að ganga …
Vel tekið á móti gestum í Reykholti
Sr. Geir Waage er þekktur fyrir hversu vel hann tekur á móti ferðamönnum sem sækja Reykholt heim. Hann segir frá af stakri þekkingu og atburðir miðalda lifna við í meðförum hans. Í veðurblíðunni í dag tók hann á móti hópi þýskra ferðamanna úr skemmtiferðaskipinu Alexander von Humboldt. Þegar farið var um Reykholtsstað var gengið þar hjá sem bær Snorra Sturlusonar …