Árlega velur Skógræktarfélag Íslands tré ársins og að þessu sinni hefur orðið fyrir valinu purpurahlynur í Borgarnesi. Hátíðleg athöfn í tilefni af því verður sunnudaginn 31. ágúst kl. 13:00. Safnast verður saman hjá landnámsvörðunni við innganginn að Skallagrímsgarði og gengið að gerseminni. Hlynurinn er talinn vera eitt af glæsilegri trjám í Borgarbyggð og á það sér meira en 60 ára …
Nýir starfsmenn í ráðhúsi Borgarbyggðar
Nokkrar breytingar eru á starfsmannaliði ráðhússins í Borgarnesi um þessar mundir og tilfærsla milli starfa. Ásthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri er farin í fæðingarorlof frá og með deginum í dag, 26. ágúst. Ásþór Ragnarsson, starfandi sálfræðingur Borgarbyggðar mun gegna stöðu fræðslustjóri í fjarveru Ásthildar. Á meðan hann gegnir starfi fræðslustjóra munu taka við hans starfi, sálfræðingarnir Inga Stefánsdóttir og Sigurður Ragnarsson. Ásta …
Götusópun í Borgarnesi
Mánudaginn 25. ágúst og þriðjudaginn 26. ágúst verða götur sópaðar í Borgarnesi. Íbúar í Borgarnesi eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að það hamli ekki götusópun. Það er fyrirtækið Hreinsitækni sem annast götusópunina en það fyrirtæki er undirverktaki HS-verktaks sem Borgarbyggð hefur gert þjónustusamning við. Mynd: Jökull Helgason
Réttir í Borgarbyggð árið 2008
Réttir í Borgarbyggð eru á eftirfarandi stöðum: 1. Kaldárbakkarétt, sunnudaginn 7. september kl. 11:00. 2. Fljótstungurétt, sunnudaginn 14. september kl. 8:00. 3. Brekkurétt, sunnudaginn 14. september kl. 14:00. 4. Þverárrétt, mánudaginn 15. september kl. 7:00. 5. Hítardalsrétt, mánudaginn 15. september kl. 9:00. 6. Svignaskarðsrétt, mánudaginn 15. september kl. 10:00. 7. Grímsstaðarrétt, þriðjudaginn 16. september kl. 11:00. 8. Oddstaðarétt, miðvikudaginn 17. …
Þvílík spenna!
Unglingarnir í Borgarnesi mættu með kennurum sínum í félagsheimilið Óðal í dag til að marka upphaf vetrarstarfsins. Þar horfðu þau m.a. saman á landsleik Íslands og Spánar á Ólympíuleikunum í Kína. Landsliðið okkar Íslendinga í handbolta vann stórsigur á Spánverjum og tryggðu sér þar með þátttöku í úrslitaleiknum sem fram fer á sunnudag. Mikil stemning var í Óðali eins og …
Lestrarhestar koma saman
Í gær, 20. ágúst, voru í Safnahúsi afhent verðlaun til krakka sem hafa verið sérstaklega dugleg að lesa í sumar. Verkefnið hét Sumarlestur 2008 sem er lestrarhvetjandi verkefni og ætlað að þjálfa færni barnanna í lestri. Á uppskeruhátíð sumarlesturs var boðið upp á veitingar, farið í leiki og vinningar og viðurkenningar afhentar. Þátttakan var afar góð og þeir 20 krakkar …
Sundnámskeið í Borgarnesi
Sundnámskeið verður haldið nú í ágúst fyrir börn fædd árið 2002. Það hefst 25. ágúst og stendur til 4. september. Kennsla fer fram mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Sigrún Ögn Sigurðardóttir (Dódó) tekur á móti skráningum í símum 898-1512 og 437-1332. Hér má nálgast auglýsinguna og frekari upplýsingar.
Endurnýjun á opnum leiksvæðum í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á síðastliðnu ári að veita 10 milljónum á ári næstu 3 árin í endurnýjun á opnum leiksvæðum í Borgarbyggð. Framkvæmdasviði ásamt íþrótta- og æskulýðsfulltrúa var falið að koma með tillögur að nýjum leiktækjum sem og nýjum leiksvæðum sem kæmu til framkvæmda á þessu ári. Framkvæmdasvið gerði það að tillögu sinni að við Böðvarsgötu yrði gert nýtt leiksvæði …
Fyrirlestur um gróðurfar í Reykholtsdal
Þriðjudagskvöldið 19. ágúst klukkan 20:30 mun Egill Erlendsson landfræðingur flytja fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu sem ber heitið ,,Gróðurfar í Reykholtsdal frá landnámi til nútíma“. Fyrirlesturinn er hluti af svokölluðum Fyrirlestrum í héraði, sem styrktir eru af Menningarsjóði Borgarbyggðar. Í erindi sínu mun Egill fjalla um loftslags- og gróðurfarsbreytingar í Reykholtsdal frá landnámi til nútíma eins þær birtast í setlögum frá …
Eldborgin afhent
Eins og fram hefur komið hér á síðunni var því fagnað í Safnahúsi Borgarfjarðar s.l. föstudag að safnið eignaðist stórt líkan af skipinu Eldborginni. Það voru þeir Sigvaldi Arason og Gunnar Ólafsson fyrrverandi skipstjóri skipsins sem höfðu forgöngu um smíði líkansins og komu þess í Borgarnes. Fyrir utan tilstyrk sveitarfélagsins að verkefninu studdu það eftirtaldir aðilar í héraði og eru …