Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands á ferð

Í gær, miðvikudaginn 10. september, voru nemendur á 2. ári í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands á ferð um Borgarnes og skoðuðu ýmsan garðagróður. Meðal annars var farið í ráðhúsgarðinn þar sem Samson B. Harðarson lektor og landslagsarkítekt sýndi nemunum ýmsa runna svo sem Alaskaylli, sem verið er að skoða á meðfylgjandi mynd. Ferðin var hluti af námi í áfanganum Plöntunotkun …

Jafnréttisáætlun Borgarbyggðar

Jafnréttisáætlun Borgarbyggðar var staðfest af sveitarstjórn um miðjan ágúst síðastliðinn. Markmið jafnréttisáætlunarinnar er eins og segir þar ,,… að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum möguleikum kvenna og karla í Borgarbyggð“. Hana má nú nálgast hér á heimasíðunni. Sjá hér.  

Námskeið að hefjast hjá Tómstundaskólanum

Tómstundaskólinn í Borgarnesi býður upp á Freestyle námskeið sem hefst núna 17. september. Sjá hér auglýsingu. Einnig verða haldin námskeið hjá Tómstundaskólanum í samstarfi við íþróttaskóla UMSB og Skallagríms. Sjá hér auglýsingu.  

Úrslitaleikur í fótbolta á Skallagrímsvelli í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 9. september, fer fram úrslitaleikur á Skallagrímsvelli í úrslitakeppni 3. deildar um hvaða lið fer upp í 2. deild að ári. Með sigri geta leikmenn Skallagríms komist upp um deild því er um að gera að fjölmenna á völlinn og styðja okkar menn. Sjá hér auglýsingu um leikinn. Áfram Skallagrímur!  

Arfleifð kynslóðanna

Á íbúafundi um merkingu eyðibýla og gamalla húsa í Menntaskóla Borgarbyggðar í gærkvöldi, 8. september, kynnti Jónína Arnardóttir nefndarmaður í menningarnefnd Borgarbyggðar samstarfsverkefni menningar- umhverfis- og landbúnaðarnefndar sem fólgið er í því að merkja þau hús sem eru eldri en frá 1950 annarsvegar og hinsvegar eyðibýli. Þá tók Margrét Guðjónsdóttir við og fjallaði um verndun menningarminja og mikilvægi þess að …

Vetrarstarf íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar

Vetrarstarf íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð er að hefjast. Fjölbreytt dagskrá er í boði alla daga og eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má nálgast dagskrána.

Ljósubörnum safnað í bók

Einn fágætasti gripurinn á sýningunni Börn í 100 ár, sem staðið hefur nú yfir í Safnahúsi um allnokkurt skeið, er Willisjeppi Jóhönnu Jóhannsdóttur ljósmóður. Hún starfaði í Borgarnesi og nágrenni í áratugi á síðustu öld. Nokkuð var um það í sumar að fólk sem Jóhanna tók á móti hafi komið á sýninguna og er nú verið að safna nöfnum þeirra …

Skólafréttir GBF eru komnar út

Annað tölublað skólafréttabréfs Grunnskóla Borgarfjarðar er komið út. ,,Skólafréttir GBF“ hóf göngu sína í ágúst. Sjá hér eldri frétt á heimasíðunni. Meðal efnis í blaðinu nú er kynning á tveimur greinum nýrra grunnskólalaga og kynning á viðburðum í skólanum. Hér má nálgast 2. tbl. fréttabréfsins. Meðfylgjandi mynd er frá íþróttadegi að Kleppjárnsreykjum 1. september. Þann dag komu nemendur frá Varmalandsskóla …

Tré ársins 2008

Á hverju ári velur Skógræktarfélag Íslands tré ársins og veitir eigenda þess viðurkenningu. Að þessu sinni varð fyrir valinu Purpurahlynur í Borgarnesi að Borgarbraut 27. Purpurahlynur er ein tegund Garðahlyns. Einkennandi fyrir hann er rauðbrúnn litur á neðra borði laufblaðanna. Hlynurinn er eilítið eldri en kom hér fram á heimasíðunni áður, en hann er rúmlega 80 ára en ekki 60 …

Sveppir og sveppatínsla í Einkunnum

Umsjónarnefnd Einkunna og Skógræktarfélag Borgarfjarðar gengust fyrir fræðslu um sveppi og sveppatínslu í Einkunnum síðastliðinn sunnudag, þann 31. ágúst. Það var Ágúst Árnason fyrrverandi skógarvörður hjá Skógrækt ríkisins í Hvammi í Skorradal sem fræddi þau tæplega 20 sem mættu um sveppi og sveppatínslu með góðum innskotum frá eiginkonu sinni Ó. Svövu Halldórsdóttur. Eftir fræðslustundina fóru þátttakendur hver með sína körfu …