Sindri þrefaldur Íslandsmeistari og Kristín setti tvö heimsmet

Íþróttafólkið Sindri Karl og Kristín Þórhallsdóttir náðu framúrskarandi árangri í sínum greinum um síðastliðna helgi. Sindri Karl varð þrefaldur Íslandsmeistari á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum fyrir 15–22 ára, sem fram fór á Akureyri. Sindri keppti í flokki 16–17 ára og sigraði örugglega í 800, 1.500 og 3.000 metra hlaupum. Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona frá Laugalandi í Borgarfirði, setti tvö heimsmet …

Hugrún Harpa Ólafsdóttir er Fjallkona Borgarbyggðar 2026

Hugrún Harpa Ólafsdóttir gegndi hlutverki Fjallkonunnar við hátíðarhöld Borgarbyggðar á 17. júní í ár. Hugrún er nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar og hefur verið virk í leiklist, félagslífi og margvíslegu starfi í skólanum. Við hátíðarhöld dagsins flutti Hugrún Harpa ljóðið Talað við ungt fólk eftir Guðmund Böðvarsson. Hugrún Harpa heimsótti einnig heimilisfólk á Brákarhlíð þar sem hún flutti ljóðið við mikla …

Hátíðarræða sveitarstjóra á 17. júní

Kæru íbúar Borgarbyggðar. Það er mér mikill heiður að ávarpa ykkur hér í dag á einum merkasta degi ársins. Í dag, á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, fögnum við því stærsta og dýrmætasta sem við eigum, frelsi okkar. Það þurfti kjark til að berjast fyrir því frelsi. Þeir voru til sem efuðust. En saga lýðveldisins okkar er mjög merkileg. Við vorum meðal …

Soffía Björg Óðinsdóttir listamanneskja Borgarbyggðar 2026

Soffía Björg Óðinsdóttir hefur verið útnefnd listamanneskja Borgarbyggðar árið 2026. Jovana Pavlovic, forseti sveitarstjórnar, tilkynnti útnefninguna við hátíðlega athöfn á 17. júní í Skallagrímsgarði, þar sem framlag Soffíu til menningar og lista var sérstaklega heiðrað. ,,Listir og menning eru meðal mikilvægustu verðmæta hvers samfélags. Þær hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, segja sögur okkar, varðveita minningar og skapa nýjar framtíðarsýnir. …

17. júní í Borgarbyggð

Borgarbyggð býður íbúum og gestum upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.Viðburði er að finna víðs vegar um sveitarfélagið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.   08:00 – Fánar dregnir að húniVið hvetjum alla íbúa til að draga íslenska fánann að húni í tilefni dagsins. 09:30- Samhjól með HjólVest. Öllum er boðið í skemmtilegan …

Sumarstemning í Borgarbyggð

Mikil lífsgleði og eftirvænting einkenna upphaf sumars í Borgarbyggð en í dag hófst bæði Sumarfjör fyrir yngstu grunnskólabörnin og starfsemi Vinnuskólans fyrir eldri ungmenni. Fyrsti dagur Sumarfjörs er í dag fyrir börn sem hafa lokið 1.–4. bekk og eru ríflega 60 börn skráð í upphafsvikur námskeiðsins. Boðið er upp á rútuferðir fyrir börn í dreifbýli á starfsstöð í byrjun dags …

Breyting á útgáfu og móttöku reikninga vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

Sameining Skorradalshrepps og Borgarbyggðar var samþykkt í íbúakosningu í september á síðasta ári og tók sameiningin gildi 01.06.2026. Kosið var í sveitarstjórn sameiginlegs sveitarfélags í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí s.l. Ákveðið hefur verið að sameinað sveitarfélag skuli nota kennitölu Borgarbyggðar og mun skrifstofa Borgarbyggðar sjá um móttöku og greiðslu reikninga sameinaðs sveitarfélags frá og með 01.06.2026. Hér með er því farið …

Jarðvegsrannsóknir við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní

Borgarbyggð tilkynnir að jarðvegsrannsóknir muni fara fram á svæðinu við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní, í tengslum við undirbúning fyrirhugaðra framkvæmda við Þorsteinsgötu 1-3. Rannsóknirnar fela í sér boranir og mælingar á jarðvegi. Á meðan framkvæmdum stendur má búast við tímabundnum truflunum, svo sem hávaða og aukinni umferð vinnuvéla. Borgarbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann …

2. fundur sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

2. fundur Sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, fimmtudaginn, 11. júní nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 2. fundur sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Streymi frá fundinum má finna hér.

Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð

Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar var haldinn í Hjálmakletti síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Allir leikskólarnir í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu og var það unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Á árinu hafa leikskólarnir því rýnt í málörvunarstarfið sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar í …