Félagsstarfið hefst 1. september. 
Dagskráin með hefðbundnu sniði; gler á mánudögum, ýmis handavinna og handverk á þriðjudögum og miðvikudögum og spilamennska á fimmtudögum.
Leiðbeinendur þeir sömu og í fyrra; Elfa í glerinu og Karólína í handavinnu / handverki.
Munið matinn í hádeginu – panta þarf daginn áður hjá Elínu ( s: 8401525)
Áfram verða  léttar yogaæfingar í félagsstarfinu. Tímarnir verða á fimmtudögum kl. 13:00 – 14:00 í salnum uppi. 
Fyrsti tími í haust verður 17. september nk. og verður haldið áfram til 15. desember.
Verð kr. 200 fyrir stakan tíma, kr. 700 fyrir mánuðinn eða kr. 1.800 fyrir allt tímabilið 
( greiðist hjá Elínu í félagsstarfinu). Yogakennari Erla Kristjánsdóttir.