Dýrin í Hálsaskógi í Skallagrímsgarði

Leikhópurinn Lotta fer nú um landið með sýningu sýna Dýrin í Hálsaskógi. Þriðjudaginn 7. ágúst er röðin komin að Borgarnesi. Sýnt verður í Skallagrímsgarði og hefst sýningin kl. 18.00. Sýningin er rúmlega klukkutími að lengd, full af glensi og fjöri fyrir alla fjölskylduna. Í uppsetningu Lottu eru dýrin í sínu rétta umhverfi og óhætt er að fullyrða að Skallagrímsgarður henti …

Samþykktir og reglur

Hér á vef Borgarbyggðar er að finna samþykktir og reglur sem í gildi eru í sveitarfélaginu, flokkaðar eftir sviðum. Með því að hafa þær allar á einum stað er vonast til að þær séu sem aðgengilegastar fyrir íbúana. Ef lesendur vefsins sakna einhverra upplýsinga þá væri velþegið að fá orðsendingu um það á netfangið vefumsjon@borgarbyggd.is.  

Grunnskóli Borgarfjarðar óskar eftir starfsfólki

Grunnskóli Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum óskar eftir umsjónarkennara á unglingastigi, með áherslu á íslenskukennslu. Einnig vantar smíðakennara í hlutastarf. Við Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri er óskað eftir þroskaþjálfara eða kennara. Þá er starf í skólaseli og aðstoðarmanns í mötuneyti (80-100%) á Hvanneyri laust til umsóknar. Upplýsingar veitir Guðlaugur Óskarsson skólastjóri í síma 435-1171, 861-5071 eða á netfangið gudlaugur@gbf.is. Upplýsingar um skólann …

Gæsluvöllurinn í Borgarnesi

Gæsluvöllurinn við Skallagrímsgötu í Borgarnesi verður lokaður föstudaginn 3. ágúst. Hann opnar aftur eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 7. ágúst og verður opinn út þá viku. Leikskólarnir í Borgarnesi opna þriðjudaginn 14. ágúst.   Ljósmyndina tók Þorgerður Gunnarsdóttir af leikskólaskvísum á Bifröst.

Ný bók frá Snorrastofu og útgáfuhátíð

Á morgun, laugardaginn 28. júlí, mun Snorrastofa vera með útgáfuhátíð þar sem þær bækur sem stofnunin hefur gefið út á umliðnum árum verða kynntar. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu og Helgi Þorláksson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands munu kynna ritin, sem flest tengjast rannsóknum í Reykholti. Kynningin verður í Bókhlöðu Snorrastofu og hefst kl. 13.00. Dagskráin er í tilefni Reykholtshátíðar, …

Dýrafangarar í Borgarbyggð

Stórgripir á vegum fara ekki vel með umferð vélknúinna farartækja. Til þess að reyna að koma í veg fyrir slys á mönnum og dýrum hefur Borgarbyggð ráðið þrjá einstaklinga til að “handsama” stórgripi sem sloppið hafa inn á vegsvæði í Borgarbyggð og tilkynnt hefur verið um til lögreglu. Til stendur að banna lausagöngu um allt sveitarfélagið en beðið er umsagnar …

Knattspyrnu- og körfuboltavellir á Bifröst

Útiaðstaða til boltaíþrótta á Bifröst hefur batnað mikið nú í sumar. Búið er að koma upp körfum á malbikuðum körfuboltavelli, auk þess sem keypt voru lítil fótboltamörk og komið fyrir á litlum gras sparkvelli. Nýr gervigrasvöllur verður svo vígður í haust, en framkvæmdir við hann standa nú yfir. Einnig er unnið að gerð nýs sparkvallar á Hvanneyri. Á myndinni eru …

Tvær skipulagsauglýsingar

Framkvæmdasvið Borgarbyggðar sendir í dag frá sér tvær skipulagsauglýsingar. Annars vegar er um að ræða breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 og hins vegar breytingu á deiliskipulagi í landi Húsafells III. Auglýsingarnar er að finna hér að neðan sem og tillögurnar sjálfar. Í báðum tilfellum rennur frestur til að skila inn athugasemdum út 30. ágúst 2007. Athygli er vakinn …

SPM gefur skortöflu

Í vikunni var sett upp ný skortafla á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Það var Sparisjóður Mýrasýslu sem gaf þessa rausnarlegu gjöf. Taflan, sem er að gerðinni Mondo, leysir af hólmi gömlu vallartöfluna sem var orðin ónýt vegna sjávarseltu. Nýja taflan er þannig uppsett að auðvelt er að taka hana niður á haustin og ætti hún því að endast lengur en sú …

Meistaramót Golfklúbbs Borgarness

Meistaramóti Golfklúbbs Borgarness lauk á Hamarsvelli á laugardaginn. Mótið hófst á miðvikudaginn og stóð því í fjóra daga í einmuna veðurblíðu. Keppt var í fjórum flokkum karla (skipt eftir forgjöf), einum flokki kvenna, öldungaflokki karla, öldungaflokki kvenna og flokki 13 ára og yngri. Þetta var fyrsta mótið sem leikið var á 18 holu Hamarsvelli og þótti það takast með miklum …