Úthlutun lóða í Borgarnesi og á Hvanneyri.

Á fundi byggðarráðs í gær var dregið úr umsóknum um lóðir sem auglýstar voru nýverið í Bjargslandi í Borgarnesi og Flatahverfi á Hvanneyri. Fulltrúi sýslumanns, Jón Einarsson, í Borgarnesi sat fundinn meðan dregið var úr umsóknum. Aldrei áður hefur komið til þess í Borgarbyggð að draga hefur þurft milli umsækjanda um lóð og þessi úrdráttur því sögulegur. Í Bjarglandi voru …

Skipulagsauglýsing – 2007-20-09

Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Eskiholts II. Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu. Breytingin fellst í að svæði sem á upprunalegu deiliskipulagi er merkt sem fyrirhuguð stækkun er nú skipulagt með 30 nýjum lóðum. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 20.09.2007 til 18.10.2007. …

Opið hús á miðvikudagskvöldum í Óðali.

Boðið verður upp á þá nýjung í vetur á vegum félagsmiðstöðvarinnar Óðals að hafa opið hús fyrir ungmenni á miðvikudagskvöldum milli kl. 20:00 og 22:00.   Sjá heimasíðu Óðals   Myndin er tekin í upptökuveri Óðals.

Styrkir til menningarverkefna

Þriðjudaginn 18. september n.k. mun Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi Vesturlands verða til viðtals milli kl. 16,oo og 17,oo í Ráðhúsi Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og kynna reglur um úthlutun styrkja frá Menningarsjóði Vesturlands. Einnig mun hún veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi umsóknir á árinu 2008. Mikilvægt er að allir þeir sem hyggja á að senda umsóknir til sjóðsins kynni …

Ný íbúðargata á Varmalandi

Ný íbúðargata er að verða til á Varmalandi. Starfsmenn Borgarverks hafa unnið að gerð götunnar frá því í lok ágúst og er gert ráð fyrir að verkinu verði lokið á þessu ári. Samkvæmt deiliskipulagi eiga að koma tvær nýjar íbúðagötur á Varmalandi og er þetta sú fyrri. Við götuna verða tvær parhúsalóðir, tvær raðhúsalóðir og fimm einbýlishúsalóðir. Við efri götuna, …

Gott samstarf við eldri borgara

Í sumar var gerð tilraun með að fá eldri borgara í Borgarfirði til að sinna safnvörslu á Pourquoi-pas? sýningunni í Englendingavík í Borgarnesi. Alls sinntu 7 manns þessari vörslu og unnu samtals 66 daga, en starfsfólk frá Safnahúsi annaðist afganginn af vöktunum. Í dag var haldinn hádegisfundur í Landnámssetri, þar sem safnverðir sumarsins hittust til að fara yfir reynslu sína …

Bekkir bæjarins

Eflaust hafa ýmsir tekið eftir að bekkjum fyrir almenning í Borgarnesi var fjölgað í sumar. Undanfarna mánuði hafa á annan tug bekkja prýtt bæinn. Bekkir draga að sér gangandi vegfarendur og eru því til þess fallnir að auðga mannlíf þéttbýlisstaða. Auk þess að hafa notagildi sem hvíldarbekkir og áningastaðir þá hafa þeir þau áhrif að þar sem þeim er komið …

Sparkvöllur við Laugagerðisskóla

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að sparkvelli við Laugagerðisskóla. Verktaki við gerð vallarins er Velverk ehf. og stýrði Björgvin Ölversson vélinni. Sparkvöllur var vígður við Grunnskólann í Borgarnesi árið 2004 og er þess ekki langt að bíða þar til sparkvöllurinn við Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri verði tekinn í notkun.   Myndir með fréttinni tók Jökull Helgason.

MÍMIR ungmennahús

Vetrarstarfið hjá Mími er hafið. Mímir ungmennahús, við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi, er ætlað ungmennum á aldrinum 16 – 25 ára. Starfsmenn ungmennahússins eru þau Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir og Svanberg Rúnarsson. Föst dagskrá vetrarins: Opið hús: Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 20:00 – 23:00 Vélhjólaklúbburinn Raftar: fastir fundir annað hvert mánudagskvöld kl. 20:00 Mömmudagar: allar nýbakaðar mæður eru hjartanlega velkomnar …