Í tilefni komu fulltrúa frá Landvernd á kvöldfund með þátttakendum í umhverfisverkefninu ,,Vistvernd í verki” í ráðhúsi Borgarbyggðar í kvöld, fimmtudaginn 27. september, voru plastmálin sem notuð hafa verið undir kaffi fjarlægð og fengnir varanlegri bollar í þeirra stað. Þetta er einn liður í verkefni á vegum sveitarfélagsins sem ber nafnið ,,umhverfisaðgerðir í ráðhúsinu”. Þótti við hæfi að af þessu …
Ný skipulagsskrá Menningarsjóðs
Ný skipulagsskrá hefur verið samþykkt fyrir Menningarsjóð Borgarbyggðar. Sjóðurinn var stofnaður var árið 1967 í tilefni af 100 ára verslunarafmæli Borgarness. Fyrsta skipulagsskrá sjóðsins var samþykkt árið 1970 og ný skipulagsskrá árið 1979. Tilgangur sjóðsins er að styrkja menningarmál í Borgarbyggð og í nýrri menningarstefnu sem verið er að vinna fyrir sveitarfélagið er kveðið á um að sérstök rækt …
Mikill áhugi á ,,Vistvernd í verki“
Þann 23. júní í síðastliðinn skrifaði Borgarbyggð undir samning við Landvernd um þátttöku sveitarfélagsins í umhverfisverkefninu „Vistvernd í verki”. Í framhaldi af því var íbúum sveitarfélagsins boðið að skrá sig í visthóp. Nú hafa 15 fjölskyldur skráð sig til þátttöku. Í hverjum hópi er gert ráð fyrir fulltrúum 5-8 fjölskyldna og því ljóst að hóparnir verða tveir á haustmisseri. Haldinn …
Ný deild opnar á leikskólanum Uglukletti
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að opnuð verði ný deild á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi frá og með 1. október næstkomandi. Ugluklettur tók til starfa síðastliðið haust. Á leikskólanum hafa verið frá því hann opnaði 44 börn á tveimur deildum. Aðsókn að leikskólanum varð mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þessi breyting gerir skólanum kleyft að taka við 10 …
Hækkun grindverks við sparkvöllinn á lóð Grunnskóla Borgarness.
Í liðinni viku var unnið við hækkun grindverks við þann hluta sparkvallarins, á lóð Grunnskóla Borgarness, sem er ofan við mörkin sem snúa að Gunnlaugsgötu. Þetta var gert vegna ónæðis sem íbúar, við götuna, urðu fyrir þegar boltar frá vellinum geiguðu framhjá mörkunum í ærslafullum knattleik. Verkið var unnið af HS-verktaki og Nýverki í Borgarnesi. Efnið í grindverkið kom frá …
Starfsmaður óskast við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi
Börn á leikskólanum UgluklettiAðstoðarmaður í eldhús óskast í leikskólann Ugluklett i Borgarnesi frá og með 1. október n.k. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma: 433-7150. Mynd: Jökull Helgason
Borgarbyggð keppir í Útsvari í kvöld.
Síðasta föstudagskvöld hófst íslenskur spurningaþáttur undir nafninu Útsvar, þar sem 24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli. Í kvöld, 21. september mun Borgarbyggð keppa við Grindavíkurbæ í beinni útsendingu í sjónvarpssal. Lið Borgarbyggðar er skipað þeim Kjartani Ragnarssyni, Nönnu Einarsdóttur og Hauki Júlíussyni og því von á harðri og skemmtilegri keppni. Liðið má hringja einu sinni í hjálparmann til …
Forstöðumaður framkvæmdasviðs hættir störfum
Sigurður Páll Harðarson, forstöðumaður framkvæmdasviðs, lætur formlega af störfum hjá Borgarbyggð 1. nóvember næstkomandi. Sigurður Páll hóf störf sem bæjarverkfræðingur í Borgarnesi árið 1993. Hann hefur nú ráðið sig sem ráðgjafa á fyrirtækjasviði hjá KPMG í Reykjavík. Jón Friðrik Jónsson sem verið hefur umsjónarmaður fasteigna lét af störfum hjá sveitarfélaginu 15. september síðastliðinn. Ásgeir Rafnsson mun taka yfir hluta af …
Íþróttafrömuðurinn Íris Grönfeldt fagnar 20 ára starfsafmæli í dag.
Íris Grönfeldt íþróttafræðingur fagnar í dag, 21. september, 20 ára starfsafmæli í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi. Síðustu ár hefur Íris sinnt almenningsíþróttum í fullu starfi við íþróttamiðstöðina og leiðbeint fólki í íþróttahúsunum í Borgarnesi, á Varmalandi og á Kleppjárnsreykjum. Það eru ekki mörg sveitarfélög sem bjóða íbúum sínum upp á ókeypis leiðsögn íþróttafræðings í íþróttamiðstöðvum sínum og hefur metnaður Borgarbyggðar hvað varðar …
Umhverfisviðurkenningar 2007
Umhverfisnefnd Borgarbyggðar óskaði eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins fyrir 17. ágúst síðastliðinn um fallegasta garðinn, snyrtilegustu götuna, myndarlegasta bændabýlið, snyrtilegasta frágang lóðar atvinnuhúsnæðis og lóð atvinnuhúsnæðis sem er í mestri framför frá árinu á undan. Lionsklúbburinn Agla og umhverfisfulltrúi Borgarbyggðar sáu um að taka við tilnefningunum. Á fimmta tug tilnefninga bárust. Félagskonur í Lionsklúbbnum Öglu sjá um að velja þá …