Verkefni vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis

Miðvikudaginn 24. maí munu fulltrúar Íslenska gámafélagsins (ÍGF) standa fyrir opnum fræðslufundi fyrir íbúa sveitarfélagsins um flokkun og innleiðingu fjórðu tunnunar. Íbúafundurinn verður haldinn í Hjálmakletti kl. 20:00 og vonumst við til þess að sjá sem flesta. Hér er hægt að nálgast Bækling um nýtt samræmt flokkunarkerfi á fjórum tungumálum.

Hjólað í vinnuna 3.- 23. maí 2023

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert.